Kafli 25
KAFLI XXV
-Mannfólkið, sagði litli prinsinn, það kastar sér ofan í flúðirnar, en það veit ekki að hverju það er að leita. Þess vegna snýr það sér bara í hringi...
Og hann bætti við:
-Það er ekki þess virði...
Brunnurinn sem við vorum komnir að líktist ekki öðrum brunnum í Sahara. Brunnarnir í Sahara eru bara einfaldar holur grafnar í sandinn. Þessi leit út eins og þorpsbrunnur. En þarna var ekkert þorp og ég hélt að mig væri að dreyma.
-Það er skrítið, sagði ég við litla prinsinn, allt er tilbúið til notkunar: trissan, fatan og reipið...
Hann hló, snerti reipið og lék sér með trissuna. Það ískraði í trissunni eins og í gömlum vindhana sem vindurinn hefur ekki blásið um lengi.
-Heyrirðu?, sagði litli prinsinn, við vekjum þennan brunn og hann syngur...
Ég vildi ekki að hann reyndi á sig:
-Ég skal gera þetta, sagði ég við hann, þetta er of þungt fyrir þig.
Ég togaði fötuna hægt upp að brúninni. Ég gætti að jafnvæginu þegar ég tók hana upp. Ég heyrði sönginn í trissunni og í bylgjum vatnsyfirborðsins sá ég sólina nötra.
-Mig þyrstir í þetta vatn, sagði litli prinsinn, gefðu mér að drekka...
Og ég skildi að hverju hann hafði verið að leita!
Ég lyfti fötunni alveg upp að vörunum. Hann drakk með lokuð augun. Hann virtist njóta þess eins og hann væri að halda upp á eitthvað. Þetta vatn var eitthvað annað og meira en næring fyrir honum.
Vatnið var sprottið frá göngu okkar undir stjörnunum, komið frá söngnum í trissunni, frá því hvernig ég púlaði við að toga það upp úr brunninum. Það var gott fyrir hjartað, eins og gjöf. Þegar ég var lítill strákur, þá var það tónlistin frá miðnæturmessunni, ljóminn af brosum fólksins í kringum mig, sem sköpuðu ljómann af jólagjöfinni sem ég fékk.
-Mennirnir hérna heima hjá þér, sagði litli prinsinn, þeir rækta fimm þúsund rósir í sama garðinum... og þeir finna samt ekki það sem þeir eru að leita að...
-Nei, þeir finna það ekki, svaraði ég...
-Og samt er hægt að finna það sem þeir leita að í einni rós eða í smá sopa af vatni...
-Vissulega, svaraði ég.
Og litli prinsinn bætti við:
-En augun eru blind. Það þarf að leita með hjartanu.
Ég var búinn að drekka. Ég andaði léttar. Sandurinn, þegar sólin er að rísa, er á litinn eins og hunang. Þessi hunangslitur gladdi mig. Af hverju þurfti ég þá að vera dapur...
-Þú verður að lofa mér svolitlu, sagði litli prinsinn, sem var sestur við hliðina á mér, varlega við mig.
-Hverju á ég að lofa þér?
-Þú veist... munnkörfu fyrir kindina mína... ég ber ábyrgð á blóminu mínu!
Ég tók skissurnar sem ég hafði teiknað upp úr vasanum. Litli prinsinn fór að hlæja þegar hann sá þær:
-Baobab-trén, þau líta svolítið út eins og kál...
-Ó!
Ég sem var svo stoltur af baobab-trjánum!
-Refurinn þinn... eyrun hans... þau líta pínu út eins og horn... og þau eru of löng!
Hann hélt áfram að hlæja.
-Þetta er ósanngjarnt, litli herrann minn, ég kunni ekkert að teikna annað en opnaðar og lokaðar kyrkislöngur.
-Ó! Þetta gengur samt alveg, sagði hann, börnin skilja.
Ég gerði því teikningu af munnkörfu og hjartað í mér skrapp saman þegar ég lét hann fá hana:
-Ég veit ekki hvaða áætlanir þú hefur...
En hann svaraði mér ekki. Hann sagði mér:
-Veistu, frá því að ég hrapaði niður á Jörðina, á morgun verður liðið eitt ár frá því það gerðist...
Síðan, eftir stutta þögn, sagði hann:
-Ég hrapaði niður mjög nálægt þessum stað hérna...
Og hann roðnaði.
Og aftur, án þess að skilja af hverju, fann ég fyrir furðulegri depurð. En á sama tíma kom ákveðin spurning upp í huganum á mér:
-Þannig það var engin tilviljun, að þú varst á gangi hérna, alveg einn, þúsundir kílómetra frá öllum mannabyggðum, morguninn sem ég kynntist þér fyrir átta dögum síðan! Þú varst að fara til baka á sama stað og þú lentir?
Litli prinsinn roðnaði meira.
Og ég bætti hikandi við:
-Af því að þetta var afmælið?...
Litli prinsinn roðnaði enn og aftur. Hann svarar aldrei neinum spurningum, en ef hann roðnar, þá þýðir það „já“, er það ekki?
-Ah! sagði ég honum, ég fer að verða hræddur...
En hann svaraði mér:
-Þú mátt vinna vinnuna þína núna. Þú mátt fara aftur að vélinni. Ég bíð hérna. Komdu aftur annað kvöld...
En ég var ekki öruggur. Ég mundi eftir refnum. Það er allaf hætta á að maður fari að gráta ef maður lætur temja sig...