Mannorð
Mannorð.
Þú mátt eigi gera þig sekan um neitt það, sem sett getur blett á mannorð þitt.
Ef þú vilt verða heppinn í ástamálum, er þér ekkert eins nauðsynlegt, eins og að hafa óflekkað mannorð. Þegar þú gengur í göturnar í Reykjavík að kvöldi dags, getur þú séð fleiri eða færri stúlkur, sem eru á mannaveiðum. Þær verður þú að varast eins og pestina!
Sá, sem hefir fengið á sig óorð af kvennamálum, og kominn er í gin kjaftakerlinganna, á sér ekki uppreistar von. Syndir hans eru auknar og margfaldaðar, og engum dettur í hug að efast um, að sögurnar um hann séu sannar.
Ef þú leggur lag þitt við vændiskonurnar, teflir þú einnig heilsu þinni í hættu; þótt þær séu fagurlega litaðar að utan, geta þær verið myglaðar og óheilbrigðar og orðið þér að fjörtjóni.
Vertu einnig vandur í vali vina þinna og gaktu á snið við slæpinga.
Vendu þig eigi á fjárhættuspil eða óheilbrigt kaupskaparbrask. Það hefir margan manninn á glapstigu leitt.