TAK og tilraunalímið
Tak og tilraunalímið. Eftir Hjalta Bjarnason.
Tak og tilraunalímið.
Stigbreyting lýsingarorða. Latur, latari, Hjaltastur. Vitlaus, vitlausari, Takastur.
Freyjukettir, Norræn menning. Önnur útgáfa 2010. ISBN númer. Flestar TAK-sagnanna voru í Stundinni okkar. Límið var sent út 8. desember 1985. Hjalti samdi Tak-sögurnar og teiknaði myndirnar á árunum 1975 til '79, þá fimm til tíu ára.
Tak er á efnarannsóknarstofunni sinni.
(Leikhljóð: blásið í drykkjarrör í vatnsglasi, alveg uppi við hljóðnemann)
Tak er að reyna að búa til nýja tegund af lími.
Tak hrærir saman efnum og les formúlur.
Þetta verður alveg fyrirtak og fyrir-Tak. Það er best að þessi hluti blöndunnar heiti F.
Tak setur á sig einangrandi logsuðuhanska. Svo vefur Tak stóran og öflugan rafsegul. Rafseguláhrifin eru til þess að límið grípi.
Þá skrifar hann R á töfluna. R fyrir rafáhrifin á límið.
(Leikhljóð: blásið í rör í vatnsglasi)
Þá er það hin blandan sem á að fara saman við. Það er best að hún heiti A-blanda.
Tak hrærir A-blöndunni saman við. Tak bætir A á töfluna. FRA-límið. Ágætis nafn. Ágætis nafn. Þetta verður stórkostleg tilraun.
Tak treður límblöndu í rjómasprautupoka og sprautar á tvo trékubba, sem hann ætlar að prófa límið á.
Heilmikið sullast á teppið.
Svo setur Tak rafsegulinn í samband og flytur hann nær trékubbunum.
Hann notar þessa sérstöku glófa á hendurnar sem einangra alveg - bæði rafmagn og hita. Trékubbarnir smella saman.
Tak er ofsákátur. Þetta er svo gott lím að logsuðuhanskarnir límast líka fastir.
Ég verð að hringja strax á blaðamann.
Geimurinn verður að fá að vita af þessu afreki á sviði límfræðinnar.
Tak hleypur í símann en gólfteppið hefur límst fast við fæturna á honum og dröslast á eftir honum.
-Halló! Þetta er Stressi blaðamaður á Bla-bla-blaðinu hér.
Ha? Hefur stórkostlegasta lím í geimi verið fundið upp? Kem í hvelli.
-Ég verð að ná mynd af þessu, segir Stressi blaðamaður og hleypur heim til Taks.
Fyrirsögnin verður: Stórkostlegasta lím í geimi hefur verið fundið upp!
Tak hefur límst við heyrnartólið og skífan af símanum er föst á puttanum.
Nú sér Tak að farið er að rjúka úr kubbunum.
Og líst ekki á blikuna.
Rétt í þessu kemur Stressi blaðamaður æðandi inn með myndavélina.
Stressi sér ekkert fyrir reyknum og flækist í rafmagnsleiðslunni svo rafsegullinn dettur úr sambandi.
Allt dettur í sundur.
Blaðageimveran og Tak verða vonsviknir.
Fundið upp eða fyndið upp? Raunalegt raunalím er ekki til.
En svo varð Tak reiður og bætti stóru T-i á töfluna.
Þetta raunalím var frat.
Þrjátíu Tak-sögur. Barn semur handa börnum.