×

我們使用cookies幫助改善LingQ。通過流覽本網站,表示你同意我們的 cookie 政策.

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Viðmót og framkoma — 閱讀文本

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Viðmót og framkoma

中級2 冰島語 課程,練習閱讀

立即開始學習本課

Viðmót og framkoma

Viðmót og framkoma.

Til þess að vinna hylli kvenna, þurfa menn að kunna að koma vel fram. Sá, sem er þögull og þunglamalegur vinnur aldrei hylli kvenna, þótt hann sé fríður sýnum. Þær halda, að hann sé heimskur — og heimskuna hatar kvenþjóðin!

Að vísu skeikar það mjög réttum skilningi, að sá óframfærni sé ætíð heimskur. Hann er ef til vill vitrari en nokkur hinna. En ólundin hefir slæm áhrif á kvenfólkið, sem alltaf krefst fjörs og glaðlyndis.

Til þess að þóknast kvenfólkinu, þarftu að þekkja öll þau smáatriði, sem í þess augum eru mikils virði. Oft sjá konur meira í kurteislegri hneigingu, brosi eða augnatilliti, heldur en þú getur gert þér í hugarlund.

Hafðu eigi ljótan munnsöfnuð í áheyrn kvenna. Það ber vott um menntunarskort og siðleysi.

Það er ljótur siður að reykja þar sem konur eru inni. Margar konur þola illa tóbaksreyk.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE