×

我們使用cookies幫助改善LingQ。通過流覽本網站,表示你同意我們的 cookie 政策.

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Að biðja sér konu — 閱讀文本

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Að biðja sér konu

中級2 冰島語 課程,練習閱讀

立即開始學習本課

Að biðja sér konu

Að biðja sér konu.

Það er sögn og sannleikur, að mörgum reynist það erfitt, að klæða fyrstu ástarjátningu sína í orð. En hjá því skeri getur þú eigi siglt. Eftir lengri eða skemmri umhugsun og fleiri eða færri vökunætur, getur þú loks eigi þagað lengur. Það fer vitanlega eftir atvikum, hvaða orð þú notar og hvernig þú hagar þér, en þó vil eg gefa þér nokkrar bendingar:

Vertu ekki feiminn og stamaðu ekki, en vertu alvarlegur og hátíðlegur á svip og í máli.

Vertu ekki með neinar óþarfa málalengingar eða tvíræðar setningar, en segðu það, sem þér býr í brjósti með fáum og vel völdum orðum.

Fyrr á tímum var það siður, að biðlar krupu fyrir þeirri konu, sem þeir játuðu ást sína, en nú mun það lagt niður, enda eru öll ytri lotningarmerki óþörf og fánýt, því að það eru hinar innri tilfinningar, sem verður að byggja á.

Bónorðsbréf munu vera alltíð á vorum dögum, en að mínu áliti ekki að sama skapi eftirbreytnisverð, því að konan, sem í hlut á, fer þar á mis við þann unað, sem hún hefir af því að heyra þig segja þessi orð: „Eg elska þig.“ Þau óma fyrir eyrum hennar eins og himneskur söngur, og engin orð er henni kærara að heyra af vörum þínum.

Bréf geta einnig hæglega komist í annarra hendur en hins rétta viðtakanda, og eins og gefur að skilja, getur það haft ýmis óþægindi í för með sér.

Dæmi eru til þess, að kona hefir tekið þeim manni, sem hún hefir gefið afsvar, jafnvel oftar en einu sinni.

Að menn hafi beðið sér konu í símskeyti eða símtali hefir komið fyrir, — að sögn fróðra manna, — en eg vil alvarlega ráða þér frá því.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE