×

我們使用cookies幫助改善LingQ。通過流覽本網站,表示你同意我們的 cookie 政策.

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 9. Njáll neitar að … — 閱讀文本

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 9. Njáll neitar að koma út

中級1 冰島語 課程,練習閱讀

立即開始學習本課

9. Njáll neitar að koma út

Húsið hans Njáls brennur. Flosi labbar upp að húsinu. „Njáll, ég vil bjóða þér að koma út. Þú þarft ekki að brenna þarna inni með sonum þínum.“

Njáll svarar: „Nei takk. Ég er orðinn gamall maður, of gamall til þess að hefna fyrir morðið á sonum mínum. Ég vil frekar deyja en að lifa í skömm.“

„Jæja,“ segir Flosi. Hann snýr sér þá að Bergþóru, konu Njáls: „Bergþóra, komdu út.“

„Nei takk. Ég er búin að vera gift honum Njáli lengi.

Örlög hans eru líka örlög mín.“ segir Bergþóra.

„Jæja.“ segir Njáll. „Leggjumst upp í rúm. Ég er þreyttur. Ég er búinn að vera þreyttur lengi.“ svarar Njáll.

Bergþóra tekur eftir því að barnabarnið hennar er enn inni með þeim. „Út með þig strákur! Húsið er að brenna!“

„Nei, amma. Ég vil frekar deyja hérna með ykkur.“ segir strákurinn. Þau leggjast þrjú saman upp í rúm, biðja til Guðs, og sofna.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE