×

我們使用cookies幫助改善LingQ。通過流覽本網站,表示你同意我們的 cookie 政策.

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 2. Höskuldur giftist – Text to read

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 2. Höskuldur giftist

中級1 冰島語 lesson to practice reading

立即開始學習本課

2. Höskuldur giftist

Tíminn líður hratt og nú er Höskuldur orðinn unglingur. Hann er sterkur, fallegur og vinsæll.

„Höskuldur, ég vil finna handa þér konu“, segir Njáll.

„Það hljómar nú ekki illa.“ segir Höskuldur.

„Ég veit um eina góða konu. Hún heitir Hildigunnur og er litla frænka hans Flosa. Hún er gullfalleg kona, en hún getur verið dálítið erfið.“ segir Njáll.

„Jæja, ég treysti þér til að velja fyrir mig.“ svarar Höskuldur.

Njáll fer í heimsókn til Flosa til þess að ræða þessa hugmynd. Flosi tekur vel í hugmyndina og segir frænku sinni frá henni.

„Hildigunnur mín. Höskuldur, strákurinn sem býr hjá Njáli, vill giftast þér. Líst þér ekki vel á það?“ spyr Flosi.

„Höskuldur? En hann á ekkert goðorð! Ég vil fá að giftast einhverjum með goðorð, þú varst búinn að lofa mér því!“ segir Hildigunnur.

Njáll svarar: „Ég get reynt að redda goðorði fyrir hann Höskuld minn, en þið verðið að gefa mér smá tíma.“

„Já já, við getum alveg beðið.“ svarar Flosi.

Nú fer Njáll heim og reynir að finna einhvern sem er til í að selja Höskuldi goðorð. Enginn vill selja goðorðið sitt, svo að næsta sumar fer Njáll á Alþingi og lætur breyta lögunum til að búa til nýtt goðorð.

Þannig fær Höskuldur goðorð. Hildigunnur og Höskuldur giftast og Njáll kaupir handa þeim land.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE