×

我们使用 cookie 帮助改善 LingQ。通过浏览本网站,表示你同意我们的 cookie 政策.

Íslenskar þjóðsögur, Uppruni Mývatns – 阅读文本

Íslenskar þjóðsögur, Uppruni Mývatns

中级1 冰岛语 课程,练习阅读

现在开始学习这个课程

Uppruni Mývatns

Þegar guð drottinn hafði skapað himin og jörð, virti hann það fyrir sér og sá að það var harla gott. En kölski var ekki á því. Honum sveið það hversu fagur heimurinn væri. Hann tók það ráð í reiði sinni að hann meig á móti sólinni og ætlaði að myrkva með því þennan dýrðar depil sköpunarverksins.

En ekki varð nú af því samt því úr migu kölska myndaðist Mývatn á Norðurlandi, enda þykir það jafnan ljótt stöðuvatn og þó er mývargurinn er vatnið dregur nafn af án efa enn verri og er hann sannkallað kvalræði fyrir menn og málleysingja umhverfis vatnið.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE