×

我们使用 cookie 帮助改善 LingQ。通过浏览本网站,表示你同意我们的 cookie 政策.

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Viðmót og framkoma – Text to read

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, Viðmót og framkoma

中级2 冰岛语 lesson to practice reading

现在开始学习这个课程

Viðmót og framkoma

Viðmót og framkoma.

Til þess að vinna hylli kvenna, þurfa menn að kunna að koma vel fram. Sá, sem er þögull og þunglamalegur vinnur aldrei hylli kvenna, þótt hann sé fríður sýnum. Þær halda, að hann sé heimskur — og heimskuna hatar kvenþjóðin!

Að vísu skeikar það mjög réttum skilningi, að sá óframfærni sé ætíð heimskur. Hann er ef til vill vitrari en nokkur hinna. En ólundin hefir slæm áhrif á kvenfólkið, sem alt af krefst fjörs og glaðlyndis.

Til þess að þóknast kvenfólkinu, þarftu að þekkja öll þau smáatriði, sem í þess augum eru mikils virði. Oft sjá konur meira í kurteislegri hneygingu, brosi eða augnatilliti, heldur en þú getur gert þér í hugarlund.

Hafðu eigi ljótan munnsöfnuð í áheyrn kvenna. Það ber vott um mentunarskort og siðleysi.

Það er ljótur siður að reykja þar sem konur eru inni. Margar konur þola illa tóbaksreyk.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE