×

我们使用 cookie 帮助改善 LingQ。通过浏览本网站,表示你同意我们的 cookie 政策.

Íslenska- A2 - Ylhýra, Bláa lónið – Text to read

Íslenska- A2 - Ylhýra, Bláa lónið

中级1 冰岛语 lesson to practice reading

现在开始学习这个课程

Bláa lónið

Fyrir sunnan Reykjavík er skagi sem lítur út eins og fótur. Hann heitir Reykjanesskagi. Ferðamenn þekkja helst tvo hluti á Reykjanesskaga: Keflavíkurflugvöll og Bláa lónið.

Bláa lónið er mjög fallegt lón sem er umkringt hrauni. Vatnið í lóninu er ljósblátt, næstum því hvítt, og það er heitt og þægilegt. Vatnið er líka mjög gott fyrir húðina.

Flestir reikna með því að Bláa lónið sé náttúrulegt lón, en það er reyndar ekki svo. Vatnið kemur í raun frá jarðhitavirkjun í nágrenninu. Virkjunin borar nokkurhundruð metra niður í jörðina og nær í sjóðandi heitt vatn sem það notar svo til að búa til rafmagn. Eftir það rennur vatnið út í hraunið.

Þetta sjóðandi heita vatn inniheldur mjög mikið af steinefnum, sérstaklega efnið kísil. Kísillinn er ástæðan fyrir því að vatnið er svona ljóst.

Bláa lónið er mjög vinsæll ferðamannastaður svo að maður þarf að kaupa miða með nokkurra vikna fyrirvara. Það er ekki beint ódýrt að heimsækja það, en það er alveg þess virði. Það er eitthvað svo huggulegt við að vera í þessu hvíta vatni úti í hrauni.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE