×

We gebruiken cookies om LingQ beter te maken. Als u de website bezoekt, gaat u akkoord met onze cookiebeleid.

Hannesar saga Grásteins, 19. Hvolparnir – Tekst om te lezen

Hannesar saga Grásteins, 19. Hvolparnir

Semi-gevorderd 1 Ijslands les om lezen te oefenen

Begin nu met het leren van deze les

19. Hvolparnir

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Hannesar saga Grásteins, nítjánda bók: Hvolparnir.

Hannesar saga Grásteins, nítjánda bók: Hvolparnir.

Freyjukettir, Norræn menning.

Nítjánda bók, Hvolparnir.

-Ja, hérna!

Ekki er nú öll vitleysan eins!

Margt hefur Hannes Grásteinn reynt og í mörgu lent í lífinu. Í sveitinni gengur gersamlega fram af honum: Tveir hvolpar eru komnir á heimilið! Þetta eru þau klossuðustu og fyrirferðarmestu dýr sem Hannes hefur nokkru sinni augum litið. Dynkirnir þegar þetta hnussast niður!

Fyrirferðin, geltið, urrið, bröltið!

Svo þykist þetta vera að hoppa, en kemst ekki einu sinni upp á stól.

Hvolpar!

Það er að auki ólykt af þeim.

Hannes hefur hugsað sér að láta þessa klossuðu hlunka strax vita hverjum á að bera virðingu fyrir á þessum bæ. Hann hvæsir og slær hvolpana fast með klónum á forvitin nefin, -- sem þeir reka ofan í alla hluti -- og halda að þeir geti rekið í Hannes líka.

Klossuð dýr.

Hannes ræður.

Hvolparnir eru fljótir að skilja, að ekki borgar sig að atast í Hannesi Grásteini. Hans persónumörk eru á hreinu. Öðru máli gegnir með hin leikóða Surt. Meðan hvolparnir eru aðeins mánaðargamlir, getur Surtur hlaupið miklu hraðar en þeir. Enda spóla þeir á sleipu kjallaragólfinu.

Surtur liggur í leyni,…

…stekkur á skottinu á þeim.

Smár hér knár.

Hannes var skynsamur að kenna hvolpunum strax í upphafi, hver er konungur dýranna hér? Hann étur alltaf fyrstur -- og alla bestu bitana.

Ef einhver dirfist að ætla að næla sér í bita áður en Hannes hefur mettast, hvæsir hann og urrar. Allir verða að læra hvað það þýðir. Hannes tyggur vel, fer sér að engu óðslega, verkar snyrtilega utan af beinunum.

Hannes étur fyrstur.

Síðan sleikir hann út um og teygir sig vandlega. Þá geta Surtur og hvolparnir fengið afganginn.

Á eftir éta hin þrjú.

Hannesi líst ekki á að hafa þessa sóða til trogs með sér. Hvolpar slafra í sig matinn, nær ótugginn; sá sem er fljótastur fær mest; þeir sulla út á golf; þeir bryðja beinin. Allt hverfur. --Mikið að þeir éta ekki trogið með. Hvolpar stækka hratt.

Þeir stækka ört.

Það hlaut eitthvað að verða úr öllum þessum býsnum sem þeir éta. Surtur heldur áfram að atast í hvolpunum, en nú á hann stundum í vök að verjast og oft vill kárna gamanið. Hannes er feginn að geta nú brugðið sér út þegar hann langar til. Allir ungar eru orðnir fleygir.

Veiðar eru ekki auðveld list.

Hannes er úti.

Það þarf þolinmæði og kænsku. Hannes læðist hljóðlaust að bráðinni. Verst er þegar hvolpaskammirnar koma æðandi með gelti og gjammi og fæla alla fugla upp. Hannes er mikil veiðikló. Við þessu mátti búast: Hann færði mér dauðan fugl.

Þótt undarlegt megi virðast, vantar mig einmitt nýveiddan fugl. Skýringin á því er sú að ég ætla að kenna hvolpunum að þeir mega ekki veiða fugla, -- en þeir eru af dýrtæku kyni. Hannes drap fugl -- og færði mér hann að gjöf.

Ekki á að hóta hundi því að maður muni slá hann ef hann gerir eitthvað af sér. Það er alrangt. Hundurinn á ekki að óttast húsbóndann neitt. Það þarf að telja hundinum trú um að sumt beri að forðast.

Ekki er nóg að skamma hvolpana eftir að þeir hafa veitt. Best er að koma í veg fyrir að þeir nokkru sinni veiði. Sumir hundar drepa fugla sér til skemmtunar og það er ekki gott. Þá vantar gott uppeldi.

Að ala upp hund.

Ég fel mig og hreyfi nýveiddan fuglinn svo annar hvolpurinn sér.

(El upp annan hvolpinn í einu.)

Ég reyni að herma eftir tísti og kvaki fugla. Hvolpurinn verður spenntur í þessu og stekkur á fuglinn.

(Þið vitið að hundar eru rándýr.)

-Nei!

-Ekki snerta!

Um leið og hann finnur lyktina af fuglinum og ætlar að glefsa í hann, slæ ég hvolpinn snöggt á síðuna með ól og segi skipandi:

-Nei!

-Ekki snerta!

Hvolpurinn hrekkur undan. Um leið og hann lítur á mig, alveg hlessa, er ég ósköp góð og klappa honum. Hvolpurinn hefur ekki hugmynd um að það var ég sem sló hann. Það er kúnstin! Það er ekki ég sem hann hræðist, heldur þessi stórhættulegi fugl!

Hann yfirfærir sársaukann á fuglinn og orðin „ekki snerta“: „Nei! Ekki snerta!“

Aftur og aftur þegar ég hreyfi fuglinn ögrandi og tísti, ætlar hvolpurinn að glefsa í fuglinn. Í hvert skipti slæ ég hann og segi:

-Nei, ekki snerta.

Að lokum tekst mér að telja báðum hvolpunum trú um að þetta litla, tístándi fjaðradýr sé stórhættulegur hlutur sem ekki borgar sig að snerta. Þetta tók um það bil 20 mínútur.

Þeir drepa ekki fugla.

Fuglar eru „stórhættulegir” í þeirra huga! Hundarnir snerta aldrei fugla upp frá þessu; --þeir taka á sig krók þegar þeir sjá fugl; --og eru að auki hræddir við allt sem heitir „ekki snerta“. Einfalt? Hundauppeldi er einfalt ef maður veit og skilur hvað maður er að gera.

Hannes horfir á aðfarirnar.

-Meiri fíflin hundar.

Hræddir við dauðan smáfugl.

Engum dettur víst í hug að reyna að kenna ketti að ekki megi snerta fugla.

Skyldi það vera hægt?

-Bjánar.

-Hugsið ykkur hvað hægt er að fá þessa hunda til að gera fyrir kex! Þeir hoppa, setjast, leggjast, sækja spýtnadrasl -- bara allt sem þeim er sagt að gera –

--fyrir kex!

Skelfilega ósjálfstæð og þýlunduð dýr, greyin.

Aldrei færi Hannes að gera einhverjar hundakúnstir fyrir kex.

Hannes heldur ætíð sinni reisn og ró í lífinu. Það er erfitt að bæla kött. Eðli hans er að stjórna sér sjálfur.

Ró.

Fyrir Hannesi mega hundar hlaupa á heimsenda með gelti og gjammi -- á eftir krumma eða hverju sem er; þeir mega láta siga sér á fé, þeir mega telja það til kosta að vera hlýðinn. Það er víst svona að vera hópdýr.

En fyrir ketti er toppurinn af tilverunni og tilgangur lífsins ekki að láta aðra stjórna sér.

Köttur er ekki hundur.

Nítjándu bók lýkur hér. Nítjánda bók: Hvolparnir.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Útgefandi: Freyjukettir, Norræn menning.

Mjá.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Mjá.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE