×

We gebruiken cookies om LingQ beter te maken. Als u de website bezoekt, gaat u akkoord met onze cookiebeleid.

image

Rassfar í steini, 80. Saga af fæti

80. Saga af fæti

Hverfum aftur til ársins 1269 þegar Magnús lagabætir leggur lokið yfir kistu Ólafs helga. Annaðhvort hafði hann annan fót Ólafs á brott með sér eða ekki, við vitum ekki hvort var. Ef Ólafur varð á þessari stundu viðskila við fót sinn er helst giskað á að fóturinn hafi borist suður til Björgvinjar þar sem Magnús lagabætir hafði konungsgarð sinn. Engum sögum fer af fæti þessum lengi vel. En svo er skyndilega til sölu fótur á uppboði í Kaupmannahöfn árið 1684 og sagður vera fótur Ólafs helga. Fóturinn lá þá í skríni úr góðmálmi sem smíðað var á 13. öld og sennilega suður í Köln. Einkennilegt er að skrínið er formað sem handleggur, en í þannig skrínum var að sjálfsögðu vanalegra að varðveita handleggsbein helgra manna fremur en fótleggi þeirra. Þetta kann að hafa orsakast af ónákvæmri pöntun eða þá að fótleggjaskrín hafi verið uppseld.

Uppboðið átti sér stað í húsi Hugos Lützow, en hann var nafntogaður safnari furðuhluta úr öllum áttum, m.a. frá Noregi. Dóttir þessa manns var gift fyrrverandi amtmanni í Björgvin. Hafi fótur Ólafs á annað borð verið staddur í Björgvin á sautjándu öld, gæti hann hafa borist í gegnum þessar tengdir í hendur Lützows uppboðshaldara. Það eru þó einberar getsakir. Víst er hins vegar að Kristján Danakonungur fimmti keypti fótinn á uppboðinu fyrir 250 ríkisdali. Með í kaupunum fylgdu gripir sem sagðir voru úr eigu Ólafs helga; silfuröxi, spenna og nokkrar perlur. Fótleggnum var komið fyrir í furðuhlutasafni konungs sem síðar varð að Þjóðminjasafni Dana.

Víkur nú sögunni til Stokkhólms. Á nítjándu öldinni var sú drottning í Svíþjóð og Noregi sem Jósefína hét. Maður hennar var Óskar I. Svíakóngur, sonur Karls þess Jóhanns sem lét leggja veginn forðum yfir Kjöl. Faðir hennar hét hins vegar Eugéne og var stjúpsonur Napóleons. Sjálf hét hún í höfuðið á ömmu sinni, Jósefínu de Beauharnais sem var fyrst ástríðufull ástkona Napóleons en síðar fyrri kona hans. Heimurinn var ekki stór í þá daga. Þessi Jósefína Svíadrottning var einlæg trúkona og kaþólsk en fyrir það fékk hún vitaskuld bágt hjá Svíum sem leyfðu eiginlega ekki trúfrelsi fyrr en eftir hennar dag. Hún varð harla kát þegar hún frétti að vígja ætti fyrstu kaþólsku kirkjuna í Noregi árið 1856, en það var Kirkja heilags Ólafs í Ósló. Hún vildi gera þessari nýju kirkju eitthvað til góða og hafði þá spurnir af því að í fórum Danakonungs væri fótur af Ólafi helga, mikil gersemi. Hún falaðist nú eftir fætinum til að gefa kirkjunni. Danir gáfu henni fótinn en héldu þó eftir skríninu. Gjöf þessi var kirkjunni kærkomin og meintur fótur Ólafs er enn í fórum hennar. Á því er þó sú undantekning að árið 2014 var tekin úr fætinum flís til að gefa dómkirkjunni í Rúðuborg þar sem Ólafur konungur hafði forðum hlotið skírn.

En er þetta fótur heilags Ólafs? Skoðunarmenn á sextándu öld nefndu ekki að fót hefði vantað á líkið í kistu Ólafs, en þeir tóku kannski ekki eftir að annar fóturinn var annars manns fótur. Af því að þeir skiljanlega þekktu Ólaf helga ekki í sjón, er alls ekki víst hvaða lík þeir skoðuðu. Það gæti hafa verið allt annar maður. Öystein Morten, forvitinn kirkjusagnfræðingur og lunkinn rithöfundur, tók til við það fyrir tæpum áratug að láta kanna með nýjustu tækni hvort þetta gæti í raun og sannleik verið fótleggur Ólafs helga. [1]

Þetta reyndist vera sköflungur af 25 til 35 ára gömlum manni sem var 176 til 184 cm að hæð. Sennilega dó eigandi þessa fótar einhvern tíma milli áranna 985 og 1040. Á beininu voru merki um gamalt, gróið ör. Ólíklegt virtist að þessi fótleggur og áfastur líkami hefðu nokkurn tíma legið í mold. Það er því ýmislegt sem styður þá kenningu að annar fótleggur Ólafs helga sé varðveittur í Kirkju heilags Ólafs í Ósló, þó ekki sé það sannað. Til þess að skera úr um þetta þyrfti að bera sýni úr honum saman við sýni úr Magnúsi syni Ólafs eða Haraldi hálfbróður hans en menn þykjast vita hvar þeir liggja. En kannski mundi sú rannsókn ekki heldur leiða til neinna svara heldur bara nýrra og flóknari spurninga.

[1] Øystein Morten: Jakten på Olav den hellige. Spartacus Forlag. Oslo 2013.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE