×

We gebruiken cookies om LingQ beter te maken. Als u de website bezoekt, gaat u akkoord met onze cookiebeleid.

image

Njóttu ferðalagsins, Guðjón Svansson, 12 - Settu ramma

12 - Settu ramma

Við erum búnir að tala um jákvæða hvatningu, mikilvægi þess að hrósa fyrir það sem vel er gert. Og að maður eigi ekki að ofvernda ekki börnin, heldur leyfa þeim að prófa sig áfram með ólíka hluti og áskoranir. Það þarf þorp til þess að ala upp barn segir gott orðatiltæki. Þorpið, hverfið, gatan fylgist með börnunum leika sér úti og inni og kemur með föður- og móðurlegar ábendingar þegar á þarf að halda. Krakkarnir dafna við að alast upp við frelsi innan ramma. Rammar eru mikilvægir. Og það er þitt hlutverk sem foreldris að setja börnum þínum skýra ramma. Þau verða að hafa ramma til að læra muninn á réttu og röngu. Þau læra ekki þennan mun ef þau hafa frelsi til að gera nákvæmlega það sem þeim dettur í hug án þess að það hafi nokkurn tíma neinar afleiðingar. Með því að vera hvetjandi fyrirmynd ertu að leggja drög að römmunum. Sýna í verki hvað góð gildi ganga út á. En þú þarft að vera tilbúinn að setja mörk, útskýra þau vel og standa svo við þau. Alveg eins og það er alltaf einn pirraður pabbi í sundi, þá er yfirleitt þar líka einn pabbi sem nennir ekki að setja börnum sínum mörk. Leyfir þeim að komast upp með allt án þess að grípa inn í þegar þau fara langt yfir strik flestra. Ástæðan? Leti, aumingjaskapur eða blanda af báðu. Það krefst orku og staðfestu að búa til ramma, setja mörk og framfylgja þeim. Það er miklu auðveldara að láta undan börnunum og leyfa þeim að komast upp með allt. En það er ekki hvorki gott fyrir börnin né þig sjálfan. Þetta snýst um virðingu, fyrir sjálfum sér og öðrum. Bæði börn og fullorðnir vilja hafa ramma, vita hvað má ganga langt og hvað gerist þegar farið er yfir mörkin. Við virkum flest best þannig. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur náð frábærum árangri undir stjórn Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar. Hinn sænski og vel skipulagði Lars kom inn með þætti sem hafði skort hjá íslenska landsliðinu. Skýrt skipulag, aga, ramma. Allir vissu nú hvað mátti og hvað ekki og fóru eftir þeim línum sem lagðar voru upp. Það breytti miklu hjá liðinu, kraftinn og dugnaðinn hafði aldrei vantað hjá landsliðinu, en rammarnir voru óskýrir og loðnir. Fáar, einfaldar, skýrar reglur. Frelsi svo lengi sem maður heldur sig innan rammanna. Afleiðingar ef maður fer yfir strikið. Ég er hrifinn af þessari aðferðafræði og við notum svipaða aðferð á okkar stráka. Þeir hafa mikið frelsi en aðhald í gegnum skýra ramma sem þeir eiga að halda sig innan. Börn prófa rammana með reglulegu millibili, athuga hvar mörkin liggja, og þá þarf maður að vera tilbúinn að standa fastur á sínu. Best er að vera ákveðinn, fastur fyrir og skýr, án þess að vera með nein öskur eða læti. Synir mínir eru ólíkir á þessu sviði. Þeir þurfa mismikla ramma og það þarf að hafa í huga. Sumir þrífast best þegar þeir fá skýr skilaboð um hvar línan liggur. Aðrir skynja rammana betur og fara ekki eins oft nálægt eða yfir línuna. Skýrir rammar og fáar, en ákveðnar reglur þýðir ekki að þú sért stífur og leiðinlegur pabbi. Þvert á móti. Of margar reglur og óskýrir rammar myndu frekar gefa það til kynna. Gott dæmi um þetta eru útivistartímar. Nokkuð sem kemur alltaf upp hjá foreldrum þegar börnin nálgast unglingsaldur og þörfin fyrir meira frelsi fer að banka upp á hjá barninu. Línur eins og „allir mega...“ eða „það þarf enginn að koma svona snemma heim“ hljóma oft og sumir foreldrar fara í baklás, vilja ekki vera öðrum síðri og gefa slaka sem þeir eru í raun ekki tilbúnir að gefa. Og börnin kannski ekki tilbúin að fá. Mikilvægt er að vera í sambandi við aðra foreldra, halda samskiptum virkum, komast að því hvort það sé rétt að þitt barn upplifi „einstaklega þrönga ramma“ eða hvort þetta sé bara í takt við aðra. Þá ertu líka betur settur í þær rökræður sem skapast þegar barnið ykkar sem er að þroskast, færir þér nýjar áskoranir. Frelsi innan ramma gefur börnum kost á að prófa sig áfram, byggja upp sjálfstraust og læra muninn á réttu og röngu.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE