×

We gebruiken cookies om LingQ beter te maken. Als u de website bezoekt, gaat u akkoord met onze cookiebeleid.

Silfursvanurinn, 3. Heimili Siggu – Tekst om te lezen

Silfursvanurinn, 3. Heimili Siggu

Semi-gevorderd 1 Ijslands les om lezen te oefenen

Begin nu met het leren van deze les

3. Heimili Siggu

Sigga: Jófríðarstaðavegur, þetta er lengsta götuheiti í Hafnarfirði. Við fluttum hingað árið 1986, en hér ólst Guðrún Helgadóttir rithöfundur upp og gerðust margar af sögunum hennar hér í þessu húsi.

Heimilið er bleikt. Meðfram öllum veggjum eru listaverk eftir manninn hennar, tengdaföður og barnabörn. Sófana prýða krossasaumaðir púðar og bútasaumsteppi eftir hana sjálfa. Svo er það nokkuð sem fer ekki fram hjá neinum sem kemur í heimsókn á Jófríðarstaðaveg; barnavagnar. Í hverjum krók og kima má sjá barnavagna, litlar styttur úr postulíni, silfri og annað eins. Sigga sýnir mér inn í svefnherbergið hennar og Yngva.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE