×

We gebruiken cookies om LingQ beter te maken. Als u de website bezoekt, gaat u akkoord met onze cookiebeleid.

LingQ Mini Stories, 41 - Alli er á veitingastað – Text to read

LingQ Mini Stories, 41 - Alli er á veitingastað

Beginner 2 Ijslands lesson to practice reading

Begin nu met het leren van deze les

(á veitingastað; verð og magn)

Alli er á veitingastað með vini sínum.

Þetta er fyrsta skiptið þeirra á þessum veitingastað og

þeir eru að ákveða hvað á að borða.

Alli vill panta þrjá mismunandi rétti

því hann vill prófa nýju réttina á matseðlinum.

En ef hann pantar mikinn mat,

mun hann þurfa að borga meira en vinur hans.

Vinur Alla er ekki mjög svangur þannig að

vinur Alla pantar bara fáeina, litla rétti.

Svo Alli ákveður að fá sér líka bara fáeina, litla rétti.

(Alli segir söguna)

Ég var á veitingastað með vini mínum.

Það var fyrsta skiptið á þeim veitingastað og

við vorum að ákveða hvað við ættum að borða.

Ég vildi panta þrjá mismunandi rétti

því ég vildi prófa nýju réttina á matseðlinum.

En ef ég pantaði mikinn mat,

hefði ég þurft að borga meira en vinur minn.

Vinur minn var ekki mjög svangur þannig að

vinur minn pantaði bara fáeina, litla rétti.

Svo ég ákvað að fá mér líka bara fáeina, litla rétti.

Spurningar:

1) Alli er á veitingastaðnum með vini sínum.

Með hverjum er Alli á veitingastaðnum?

Alli er á veitingastaðnum með vini sínum.

2) Alli og vinur hans eru að ákveða hvað þeir eigi að borða á veitingastaðnum.

Hvað eru Alli og vinur hans að gera?

Þeir eru að ákveða hvað þeir eigi að borða á veitingastaðnum.

3) Vinur Alla var ekki mjög svangur.

Var vinur Alla mjög svangur?

Nei, það var hann ekki.

Vinur Alla var ekki mjög svangur.

4) Vinur Alla pantar bara fáeina, litla rétti.

Hvað pantar vinur Alla mikinn mat?

Vinur Alla pantar bara fáeina, litla rétti.

5) Það var fyrsta skiptið sem Alli og vinur hans fóru á veitingastaðinn.

Höfðu Alli og vinur hans verið á veitingastaðnum áður?

Nei, þetta var fyrsta skiptið þeirra þar.

6) Alli vildi panta þrjá mismunandi rétti.

Hvað vildi Alli panta mikinn mat?

Alli vildi panta þrjá mismunandi rétti.

7) Hefði Alli pantað mikinn mat, hefði hann þurft að borga meira en vinur hans.

Hvað hefði gerst ef Alli hefði pantað mikið af mat?

Hann hefði þurft að borga meira en vinur hans.

8) Alli ákvað líka að fá sér bara fáeina, litla rétti.

Hvað ákvað Alli líka að fá sér?

Alli ákvað líka bara að fá sér fáeina, litla rétti.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE