×

We gebruiken cookies om LingQ beter te maken. Als u de website bezoekt, gaat u akkoord met onze cookiebeleid.

Nieuwjaarsactie - Verlengde Week Tot 50% korting
image

Icelandic Online Level 2, HANN FÉKK UPPLÝSINGAR ...

HANN FÉKK UPPLÝSINGAR ...

Ég þurfti að hugsa um ansi margt í byrjun. Ég þurfti að byrja á því að fá skrifstofu í Nýja Garði, setja upp tölvu og koma öllu dótinu mínu fyrir.

Svo var ég auðvitað að átta mig á kerfinu og hvernig allir hlutir virka hérna. Ég hafði samband við Starfsmannasvið Háskólans og fékk hjá þeim Handbók starfsfólks.

Þar fékk ég meiri upplýsingar um launamálin og launaseðilinn og vinnustaðinn í heild. Þetta skýrðist svo smátt og smátt allt saman. Síðan þurfti ég að skipuleggja námskeiðin sem ég átti að kenna og ganga frá kennsluáætlun.

Auðvitað er alltaf svolítið mál að byrja nýtt líf í nýju landi og á nýjum vinnustað – en ég lifði þetta allt saman af og mér hefur bara liðið vel hérna.

Ég get talað íslensku núna og það er frábært! Ég geng alltaf í vinnuna, þegar það er ekki brjálað veður! En ég get líka tekið strætó.

Ég er mættur í Nýja Garð snemma á morgnana og ég er í vinnunni allan daginn. Það er nóg að gera, ég get ekki sagt annað, en ég er bara bjartsýnn!

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE