×

우리는 LingQ를 개선하기 위해서 쿠키를 사용합니다. 사이트를 방문함으로써 당신은 동의합니다 쿠키 정책.

Geimveran TAK, TAK og Freki – 읽을 텍스트

Geimveran TAK, TAK og Freki

초급 2 읽기를 연습하는 아이슬란드어의 수업

지금 본 레슨 학습 시작

TAK og Freki

TAK og Freki. Eftir Hjalta Bjarnason.

TAK og Freki. Mynd af Hjalta. Hjalti samdi Tak-sögurnar og teiknaði myndirnar á árunum 1975 til 1979, þá fimm til tíu ára.

Freki var í Stundinni okkar 3. nóvember 1985.

Freki og Tak.

Freka geimveran, sem heitir Freki, segir við Tak: „Ég ætla að fara til afa og ömmu.“ Þau voru að koma úr sumarfríi á annarri stjörnu.

Afi, amma.

Afinn og amman ætla að fara að taka upp úr töskunum sínum.

Freki ryðst inn til þeirra án þess að heilsa og spyr frekjulega: „Eruð þið með einhverjar gjafir handa mér? Eitthvert dót.“

Hann ryðst ofan í töskurnar og gramsar í þeim.

Hann endar á að hvolfa öllu úr þeim á gólfið.

Freki stendur á miðju gólfi og öskrar af því að hann fann enga gjöf handa sér.

Amma hans kemur þá með stóran pakka og segir: „Freki minn, hér er gjöf handa þér, elskan.“

Freki hrifsar pakkann af ömmu sinni og þreifar á honum en segir svo: „Oj, hann er mjúkur. Þetta eru föt. Vil það ekki!“

Hann fleygir pakkanum aftur fyrir sig og öskrar: „Ég vil annan pakka.“

„Hér er fallegur, upptrekktur bíll handa þér, Freki minn,“ segir amma hans.

Freki skoðar bílinn aðeins og segir: „Iss, hann er allt of lítill. Ég vil stóran!“

Freki trekkir bílinn upp þangað til fjöðrin slitnar.

Hann hendir bílnum í ruslakörfuna.

„Viltu lakkrís, litli vinur?“ spyr afi.

Freki þrífur allan lakkrísinn af afa sínum og hámar hann allan í sig. Svo fer hann í fýlu.

Hann fer inn í annað herbergi og kemur þar auga á konfektkassa sem stendur á borðinu. „Amminamm,“ hugsar Freki. Þetta er nefnilega grænt, danskt stjörnukonfekt.

Freki bítur í einn mola en finnst hann vondur og skyrpir honum út úr sér á gólfið.

Hann bítur í alla molana og skyrpir þeim út úr sér.

Freki treður öllu konfektinu undir teppið svo enginn sjái það.

Þá kemur stór kúla á teppið.

Freki tekur sig til og hoppar á kúlunni og stappar til að slétta hana.

Afi hans og amma heyra lætin og koma inn í herbergið.

„Freki minn, hvað ertu að gera?“ spyr amma hans.

„Nú sérðu það ekki?“ svarar Freki.

„Þú hefur eyðilagt allt konfektið, Freki minn,“ segir afi hans.

„Ég vil fá gott konfekt,“ öskrar Freki þá.

„Já, elskan, við skulum fara út í búð að kaupa gotterí,“ segja afi og amma.

Og það gera þau fyrir Freka.

Þá hugsar Tak. Freki verður auðvitað alltaf frekari og frekari þegar allt er látið eftir honum.

Þrjátíu TAK-bækur. Barn semur handa börnum.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE