Náttljós
🎵
Alltaf er fjör á Tulipop, Tulipop.
Komdu nú með mér.
..ég sýna þér töfrana alltaf hér.
Búi, Gló, Freddi, Maddý og Barri tré.
Ég elska þennan stað.
🎵
Náttljós
-Ekki kíkja strax.
-Hehe. Við lofum.
-Tilbúin? Einn, tveir og þrír. Opnið augun!
-Vá! Vohohó!
-Sjáið þetta!
-Ég verð að segja þetta er flott, Búi.
-Það glitrar allt.
-Sjáiði hvernig kálhausarnir fanga ljósið
-Vá, töff!
-Þetta er afar fallegt en klukkan er orðin mjög margt.
-Já og ég þarf minn fegurðarblund.
-Hehe. Sjáumst í fyrramálið.
-Góða nótt, Búi. Sjáumst á morgun.
-Bless, Búi.
-Bless, bless. Þetta er svo fallegt.
-Oh, hah! Hoh! Ha! Hvað? Ha. Húsið mitt. Huh, ha? Hvað? Af hverju ert þú hér? Ha? Ha?
-Nei! Hm, höh, hvað? Nei! Gló, Maddý, Freddi, HJÁLP!
-Þau eru alls staðar. Stór og slímug dýr með pödduaugu á stilkum.
-Öh, meinarðu svona?
-Ha? Öh!
-Hafðu ekki áhyggjur, þetta er bara gúmmígúbbi.
-Oj!
-Vá, svalt!
-Þeir eru sætir og slímið þeirra er gómsætt.
-Uogh! Sætir? Nei, nei, nei, nei, þeir eru ekki sætir og þeir eru úti um allt húsið mitt. Hvað á ég nú að gera?
-Og ég hélt að ég væri dramadrottning.
-Komdu, Búi. Við skulum koma og róa okkur.
-Anda inn ...hoh... og anda út
-Hoh...
-Líður þér betur núna?
-Hohohoho, ó já takk fyrir
-Hehe
-Ég veit að þér er dálítið brugðið, Búi, en gúmmígúbbar eru meinlausir. Þeir eru í raun ástríkar, gáfaðar verur og svo eru þeir líka afar listrænir. Sjáiði þetta.
-Ó, vá, þetta er ég.
-Vá! Þetta er magnað.
-Hehehe og þessi er bara kríli.
-Oh, gútsígútsígú.
-Svo þeir verða stærri?
-Ó, já, Búi, miklu stærri ef þeir lifa.
-Hvað?
-Ja, sjáiði til. Einu sinni á ári ferðast öll gúmmígúbbakrílin til Nátthellanna til þess að fullorðnast. Ef þeir komast ekki þangað, ja, þá er hætta á að þeir lifi ekki af.
-Hvað? En þeir eru ekki þar. Þeir eru úti um allt húsið mitt. Af hverju?
-Ja, þeir laðast að ljósi. Skildirðu nokkuð eftir kveikt ljós í nótt?
-O, ó, næturljósið mitt.
-Krakkar, við verðum að koma þeim heim í Nátthellana, áður en það er of seint.
-En þeir eru svo rosalega margir. Það tekur marga daga, jafnvel mánuði.
-Hmm, ekki ef við vísum þeim veginn.
-Hvað?
-Hehehe nú líst mér á ykkur.
-Öll ljósin eru slökkt.
-Gjörðu svo vel. Þessi er handa þér.
-Þessa leið gúmmígúbbar, eltiði ljósið.
🎵
Eltið nú ljós.
Fetum slóð.
Eltið nú ljós.
Já.
Sem vísar heim.
Vúhú.
Já.
Þetta virkar.
Eltið nú ljós.
Vá, þeir elta okkur.
Fetið slóð.
Eltið nú ljós.
Þessa leið.
Þetta virkar.
Þetta virkar.
Sem vísar heim.
🎵
-Við erum komin. Nátthellarnir.
-Þeir eru allir komnir. Jæja krakkar, slökkvum ljósin.
-Má ég hafa kveikt? Ég er svolítið myrkfælinn.
-Já auðvitað. Hérna, þetta hjálpar.
-Öh, takk.
-Komiði, strákar og stelpur og ö, ö, allir gúmmígúbbar. Allir inn.
-Vá!
-Vá. Þetta er æðislegt.
-Vó. Þetta er töfrum líkast.
-Öh, krakkar, hvað er í gangi?
-Sjáðu bara.
-Hoh? Hohoho! Töff!
-Vitiði hvað? Ég held að ég mun(i) sakna þeirra smá.
-Já, ég líka en heyriði allir saman, nú er partý.
-Vúhúhú!
🎵
Eltið nú ljós.
Já!
Fetið slóð.
Eltið nú ljós.
Sjáið þetta!
Áfram Freddi!
Freddi. Áfram Freddi.
Töff.
Þetta er flott.
Sem vísar heim.
🎵
-Það var svo gaman í gær. Við komum öllum gúmmígúbbunum í hellinn.
-Nú á bara eftir að þrífa þetta allt.
-Hehe, höh. Mmm, namm.
-Oj! Freddi!
-Hvað? Slím er gott. Hahaha.
🎵
Fetið slóð.
Sem vísar heim.
🎵