×

우리는 LingQ를 개선하기 위해서 쿠키를 사용합니다. 사이트를 방문함으로써 당신은 동의합니다 쿠키 정책.

Litli Prinsinn, Kafli 19 – 읽을 텍스트

Litli Prinsinn, Kafli 19

중급 1 읽기를 연습하는 아이슬란드어의 수업

지금 본 레슨 학습 시작

Kafli 19

KAFLI XIX

Litli prinsinn fór að klifra upp hátt fjall. Einu fjöllin sem hann hafði nokkru sinni kynnst voru eldfjöllin þrjú sem náðu honum bara upp í hné. Óvirka eldfjallið hafði hann notað sem stól til að sitja á því. „Frá svona háu fjalli eins og þessu“, sagði hann við sjálfan sig, „get ég samtímis séð alla plánetuna og allt fólkið á henni...“ En hann sá ekkert nema flugbeitta kanta steinanna.

-Góðan daginn, sagði hann upp úr þurru.

-Góðan daginn... Góðan daginn... Góðan daginn... svaraði bergmálið.

-Hver ert þú? sagði litli prinsinn.

-Hver ert þú... hver ert þú... hver ert þú... svaraði bergmálið.

-Verið vinir mínir, ég er einn, sagði hann.

-Ég er einn... ég er einn... ég er einn... svaraði bergmálið.

„Þvílíkt furðuleg sem þessi pláneta er! hugsaði hann í framhaldinu. Hún er alveg þurr, oddhvöss og sölt.

Og mennirnir hafa ekkert ímyndunarafl. Þeir endurtaka bara það sem maður segir við þá... Heima hjá mér átti ég blóm: Hún talaði alltaf af fyrra bragði...“

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE