×

우리는 LingQ를 개선하기 위해서 쿠키를 사용합니다. 사이트를 방문함으로써 당신은 동의합니다 쿠키 정책.

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, FORMÁLI – 읽을 텍스트

Leiðarvísir í ástamálum - Karlmenn, FORMÁLI

중급 2 읽기를 연습하는 아이슬란드어의 수업

지금 본 레슨 학습 시작

FORMÁLI

INGIMUNDUR GAMLI

**LEIÐARVÍSIR

Í ÁSTAMÁLUM**

**I.

KARLMENN**

BÓKAFÉLAGIÐ NÝJA - REYKJAVÍK 1922

FÉLAGSPRENTSMIÐJAN

**FORMÁLI. **

Eg er þegar kominn svo til ára minna, að tími er kominn til að birta þær athuganir mínar, sem í þessari bók eru. Eg hefi komist í margt um dagana og reynt sitt af hverju. Ráð þessi eru aðallega byggð á reynslu minni og að nokkru leyti á annarra reynslu, og ef þú ert ekki sammála mér alstaðar, ætla eg að minna þig á málsháttinn: „Greindur nærri getur, en reyndur veit þó betur.“

Sumir kunna ef til vill að hugsa sem svo, að óþarft sé, að leggja mönnum ráð í þessu efni, en það er misskilningur. Það, sem aðallega hvatti mig, til að gefa út bækling þennan, er sú von, að með því kunni mér að takast að koma í veg fyrir einn eða fleiri hjónaskilnaði, ef menn hlýta mínum ráðum. Eg hefi, sem sé, veitt því eftirtekt, að árlega fjölgar hjónaskilnuðum, bæði til sveita og í kaupstöðum, en þó einkum hér í Reykjavík.

Loks óska eg öllum, sem bók þessa lesa, giftum sem ógiftum, allra heilla á ástarbrautum þeirra.

Ritað á Fidesmessu 1922.

INGIMUNDUR GAMLI.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE