×

우리는 LingQ를 개선하기 위해서 쿠키를 사용합니다. 사이트를 방문함으로써 당신은 동의합니다 쿠키 정책.

Íslenska- B1,B2 - Ylhýra, Lopapeysur – 읽을 텍스트

Íslenska- B1,B2 - Ylhýra, Lopapeysur

중급 2 읽기를 연습하는 아이슬란드어의 수업

지금 본 레슨 학습 시작

Lopapeysur

Ef þú hefur farið í útilegu á Íslandi eða kíkt á útihátíð hefurðu séð fólk í peysum sem eru prjónaðar úr ull. Þessar peysur heita lopapeysur. Þær eru vanalega brúnar, gráar eða svartar og með mynstri sem fer svona í hring í kringum axlirnar á manni. Lopapeysur eru þykkar og hlýjar og þess vegna er mjög gott að eiga lopapeysu þegar maður fer í útilegu.

Lopapeysuhönnunin varð til í kringum miðja síðustu öld. Þó að hönnunin sé ekki svo gömul þykir mörgum Íslendingum vænt um lopapeysuna, hún er svo skemmtilega gamaldags.

Margir prjóna peysur á fjölskyldumeðlimi sína. Meira að segja sumir unglingar prjóna lopapeysur. Ef þú ert að leita þér að nýju áhugamáli væri það ágæt hugmynd að kíkja á YouTube og læra að prjóna.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE