×

우리는 LingQ를 개선하기 위해서 쿠키를 사용합니다. 사이트를 방문함으로써 당신은 동의합니다 쿠키 정책.

Íslenska - A1 - Ylhýra, Sund – Text to read

Íslenska - A1 - Ylhýra, Sund

초급 2 아이슬란드어의 lesson to practice reading

지금 본 레슨 학습 시작

Sund

Sundlaugar eru mjög vinsælar á Íslandi. Það er sundlaug í næstum því hverjum einasta bæ og það eru sautján sundlaugar í eða nálægt Reykjavík. Heitt vatn er ódýrt á Íslandi svo að það er ódýrara að vera með sundlaugar hérna en annars staðar í Evrópu.

Í sundlaugum er ein stór sundlaug og svo nokkrir heitir pottar. Það er alveg hægt að fara í sund til að synda, en ég geri það aldrei. Ég fer í sund til að liggja í heita pottinum og

spjalla við vini mína. Það líður öllum vel að liggja í hita og þegar manni líður vel þá er auðvelt að spjalla.

Þegar maður fer í sund tekur maður með sér sundföt og handklæði. Fólk er vanalega ekki í skóm. Áður en maður fer í laugina þarf maður að þvo sér án sundfata. Mörgum túristum finnst mjög óþægilegt að þurfa að vera nakinn í sturtu með öðru fólki, en þannig er það á Íslandi.

Það kostar sirka þúsund krónur að fara í sund, það kostar minna ef maður fer oft. Mér finnst það alveg þess virði.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE