×

우리는 LingQ를 개선하기 위해서 쿠키를 사용합니다. 사이트를 방문함으로써 당신은 동의합니다 쿠키 정책.

LingQ Mini Stories, 7 - Jökull vinnur á skrifstofu – 읽을 텍스트

LingQ Mini Stories, 7 - Jökull vinnur á skrifstofu

초급 2 읽기를 연습하는 아이슬란드어의 수업

지금 본 레슨 학습 시작

Jökull vinnur á skrifstofu.

Hann er mjög upptekinn alla daga.

Hann fer á marga fundi með viðskiptavinum sínum.

Jökli leiðast þessir fundir.

Honum finnast þeir mjög leiðinlegir.

Sumir viðskiptavinir eru vinalegir gagnvart Jökli.

Sumir viðskiptavinir eru samt ekki vinalegir.

Jökull fer í löng hádegismatarhlé.

Hann getur farið heim klukkan fimm.

Hann bíður alla daga eftir að klukkan verði fimm.

(Jökull segir söguna)

Ég vinn á skrifstofu.

Ég er mjög upptekinn alla daga.

Ég fer á marga fundi með viðskiptavinum mínum.

Mér leiðast þessir fundir.

Mér finnast þeir mjög leiðinlegir.

Sumir viðskiptavinir eru vinalegir gagnvart mér.

Sumir viðskiptavinir eru samt ekki vinalegir.

Ég fer í löng hádegismatarhlé.

Ég get farið heim klukkan fimm.

Ég bíð á hverjum degi eftir að klukkan verði fimm.

Spurningar:

1) Jökull vinnur á skrifstofu.

Vinnur Jökull í skóla?

Nei, Jökull vinnur á skrifstofu.

2) Jökull er mjög upptekinn alla daga.

Er Jökull mjög upptekinn?

Já, Jökull er upptekinn alla daga.

3) Jökull fer á marga fundi með viðskiptavinum sínum.

Fer Jökull á fáa fundi?

Nei, hann fer á marga fundi með viðskiptavinum sínum.

4) Jökli finnast fundirnir leiðinlegir.

Finnast Jökli fundirnir leiðinlegir?

Já, Jökli finnast fundirnir leiðinlegir.

5) Sumir viðskiptavinir eru vinalegir.

Eru allir viðskiptavinir vinalegir?

Nei, bara sumir viðskiptavinir eru vinalegir.

6) Jökull fer í löng hádegismatarhlé.

Fer Jökull í stutt hádegismatarhlé?

Nei, hann fer ekki í stutt hádegismatarhlé.

Hann fer í löng hádegismatarhlé.

7) Jökull getur farið heim klukkan fimm.

Getur Jökull farið heim klukkan fjögur?

Nei, hann getur farið heim klukkan fimm.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE