Kítlukrútt
🎵
Alltaf er fjör á Tulipop, Tulipop.
Komdu nú með mér.
..ég sýna þér töfrana alla hér.
Búi, Gló, Freddi, Maddý og Barri tré.
Ég elska þennan stað.
🎵
Kitlukrútt
-Höh. Mér líður undarlega í dag. Öh, já, mjög furðulega.
-Hehehehe.
-Hey, hvað er svona fyndið, Ping og Pong? Feldur allra verður skrýtinn á morgnana og sérstaklega eftir gott kvöldbað. Jæja, lautaferð. Best að fara heim til Búa. Arh, úff.
-Hehehe.
-Gerði ég nóg af salatsamlokum fyrir lautaferðina, Gló?
-Þú gerðir nóg af samlokum til að endast út ævina, Búi.
-Hey, eruð þið nokkuð byrjuð án mín?
-Hæ, Fr.... oh! Hvað ertu eiginlega með á höfðinu?
-Vó.
-Bíddu, hvað er ég með á höfðinu?
-Hefurðu ekki séð þá?
-Öh, hvað er þetta á höfðinu mínu? Ah, mig klæjar.
-Ja, ég hef ekki séð þá áður.
-Ég sæki bókina mína.
-Veistu, ég held ég hafi séð þessa áður.
-Júhú, vonandi hafið þið ekki klárað allt nestið. Ú, Freddi, flottir dúskarnir í hárinu þínu. Þú verður að sýna mér... ú! Hvað er þetta?
-Ja, samkvæmt furðuskepnubókinni eru þeir... höh! Kitlukrútt!
-Hvernig næ ég þeim af mér?
-Það stendur ekkert um það í bókinni.
-Ó, ó kannski (við) getum sungið lag svo þeir lognist út af...
-...og detti af höfði Fredda. Góð hugmynd.
🎵
Kitlukrúttin, kitlukrúttin, sitja höfði Fredda á.
Kitlukrúttin, kitlukrúttin, þreyttir eru, sofnið þá.
La-lalala-la-lalala-la-lalala
Kitlukrúttin, kitlukrúttin, sitja höfði Fredda á.
Kitlukrúttin, kitlukrúttin, þreyttir eru, sofnið þá.
🎵
-Freddi, vaknaðu. Freddi!
-Ha, virkaði það? Oh, nei, klæjar. Þeir eru ennþá.
-Enginn getur staðist salatsamlokurnar mínar. Viljiði fá smá bita, litlu kitlukrútt? Hérna, hérna. Hvað? Í alvöru?
-Oh, hjálpið mér.
-Jæja, nú er nóg komið. Ég tek þá bara af. Eða kannski ekki.
-Hvað á ég að gera? Af hverju ég?
-Ja, er það ekki augljóst, Freddi? Feldurinn þinn er skítugur.
-Hann er það ekki.
-Kannski ættir þú að prófa að þvo þér, Freddi.
-Ég gerð... oh, nú, jæja þá.
-Ég fer í gott bað og skrúbba feldinn svo hreinan að þið kitlukrútt flýið burt hraðar en... hmm... bíddu við, ég fór í gott bað í gærkvöldi.
-Þvo? Nei, nei, nei minn kæri. Það er langverst af öllu. Kitlukrútt vilja bara mjög, mjög hrein höfuð.
-Er það? Ég vissi ég væri ekki óhreinn.
-Raunar er eina leiðin til að losna við þá að verða haug, drulluskítugur, hehe.
-Ó, takk, herra Barri.
-Ekkert að þakka.
-Búi, Gló, Maddý...
-Krakkar, getiði hvað...
-Ah, farðu af mér, ah, ah, oh.
-Hvað?
-Fyrirgefðu að ég sagði að þú værir skítugur, Freddi.
-Já, fyrirgefðu. Við erum líka komin með þá. Oh, ah!
-Ha? Hvernig losnum við við þá?
-Haha. Ég kann pottþétt ráð.
-Mýrin?
-Ég fer ekki út í hana.
-Ja, við verðum.
-Já, herra Barri sagði að kitlukrúttin þoldu ekki drullu.
-Jæja þá.
-Á þremur.
-Allt í lagi.
-Einn, tveir, þrír.
-Oh!
-Öh!
-Oj bara!
-Bðöh!
-Þvílík fýla. Oj!
-Já, það virkaði!
-Já!
-Og ekki koma aftur kitlukrútt.
-Ja, við erum skítug en við erum þó laus við þessi litlu kvikindi.
-Hahaha.
-Ha?
-Hvað?
-Oj!
-Tásutrítlar!
-Æ, nei, herra Barri!
-Herra Barri!
-Hjálp, hjálp, hjálp!