×

LingQをより快適にするためCookieを使用しています。サイトの訪問により同意したと見なされます クッキーポリシー.

Litli Prinsinn, Kafli 6 – 読むためのテキスト

Litli Prinsinn, Kafli 6

中級 1 アイスランド語 の読み練習用レッスン

今すぐこのレッスンを開始

Kafli 6

KAFLI VI

Ó! Litli prins, mér hefur smám saman tekist að skilja þitt litla og dapra líf. Það er langt síðan þú hefur getað notið sólsetursins. Ég fékk að heyra af því nýja smáatriði um morguninn , fjórða daginn, þegar hann sagði:

-Ég kann svo vel að meta sólsetrin. Förum og sjáum sólsetur...

-En það þarf að bíða...

-Bíða eftir hverju?

-Bíða eftir að sólin setjist.

Þú leist út fyrir að vera steinhissa og svo hlóstu meira að segja aðeins. Og þú sagðir mér:

-Mér finnst alltaf eins og ég sé ennþá heima hjá mér!

Það er nefnilega þannig. Þegar það er hádegi í Bandaríkjunum þá vita allir að sólin sest í Frakklandi. Maður þyrfti að geta farið til Frakklands á einni mínútu til að upplifa það sólsetur. Því miður er Frakkland allt of langt í burtu. En á plánetunni þinni, sem er svona lítil, þá er nóg að færa stólinn sinn um nokkur fet. Og þú getur séð rökkrið hvenær sem þú vilt...

-Einu sinni sá ég fjörutíu og fjögur sólsetur á einum degi!

Og svo skömmu seinna bættir þú við:

-Þú veist... þegar maður er mjög dapur þá líður manni betur ef maður fær að sjá sólsetrið...

Ég fékk vitneskju um það smáatriði

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE