×

LingQをより快適にするためCookieを使用しています。サイトの訪問により同意したと見なされます クッキーポリシー.

Litli Prinsinn, Kafli 5 – 読むためのテキスト

Litli Prinsinn, Kafli 5

中級 1 アイスランド語 の読み練習用レッスン

今すぐこのレッスンを開始

Kafli 5

KAFLI V

Á hverjum degi lærði ég eitthvað um plánetuna hans, um brottförina, um ferðina. Það kom hægt og rólega, eftir því sem hann velti hlutunum fyrir sér. Það var þannig sem ég, á þriðja deginum, lærði um vesenið með baobab-trén.

Í þetta skiptið var það aftur kindinni að þakka, því allt í einu fór prinsinn að spyrja mig, eins og hann hefði skyndilega [KM18.1]verið gripinn miklum efa:

-Það hlýtur að vera satt, er það ekki, að kindur éti runnagróður?

-Jú. Það er satt.

-Ó! Þá er ég ánægður!

Ég skildi ekki af hverju það væri svona mikilvægt að kindur ætu runnagróður. En litli prinsinn bætti þá við:

-Þar af leiðandi hljóta þær líka að éta baobab-tré?.

Ég sagði við litla prinsinn að baobab-tré væru ekki runnagróður, heldur tré á stærð við kirkjur og jafnvel þótt maður kæmi með heila fílahjörð, þá dygði hún ekki einu sinni til að eyðileggja eitt, stakt slíkt tré.

Hugmyndin um heila fílahjörð fékk litla prinsinn til að hlæja:

-Það þyrfti þá að stafla þeim hverjum upp á annan...

En síðan sagði hann spaklega:

-Baobab-trén, áður en þau hafa náð fullri stærð, eru lítil í byrjun.

-Það er hárrétt! En af hverju viltu að kindurnar þínar borði litlu baobab-trén?

Hann svaraði mér: „Jú, sjáðu til!“ eins og þetta snerist um eitthvert sönnunargagn. Og ég þurfti að brjóta heilann virkilega mikið til að skilja hvert vandamálið væri.

Þegar allt kom til alls, var það eins á plánetu litla prinsins og á öllum öðrum plánetum, að þar voru góðar plöntur og slæmar. Þar af leiðandi [KM19.1]spruttu líka góð fræ af góðum plöntum og slæm fræ af slæmum plöntum þar. En fræin eru ósýnileg. Þau sofa, falin í jörðinni, alveg þangað til þau taka upp á því að vakna. Þá teygja þau úr sér og ýta hægt og rólega fallegri og sakleysislegri spíru upp í átt að sólinni. Ef þetta er spíra af radísu- eða rósarunna, getur maður leyft spírunni að vaxa eins og hún vill, en ef þetta er skaðleg planta, þarf að rífa hana upp um leið og maður ber kennsl á hana. Vissulega voru hættuleg fræ á plánetu litla prinsins... sem voru [KM20.1]einmitt fræ babobab-trjánna. Jarðvegur plánetunnar er allur mengaður af þeim. Ef maður reynir of seint að fjarlægja baobab-tré, getur maður aldrei losnað við það[KM21.1]. Það tekur yfir allt plássið á plánetunni og holar hana í sundur með rótum sínum. Ef plánetan er of lítil og trén of mörg, sprengja þau hana í sundur.

„Þetta er spurning um aga“, sagði litli prinsinn mér seinna. „Þegar maður er búinn að klæða sig á morgnana, þarf að snyrta plánetuna vandlega. Það þarf reglulega að hemja baobab-trén með því að rífa þau upp um leið og maður getur greint þau frá rósarunnunum, á því hversu mikið stærri þau eru, meðan þau eru ennþá ung. [KM22.1]Þetta er einstaklega leiðinleg vinna, en mjög auðveld.

Og einn daginn ráðlagði hann mér að reyna að gera fallega teikningu, til að festa ímyndina í hugum barna og sjálfs mín. „Ef þau eiga síðan eftir að ferðast[KM23.1], sagði hann mér, getur það reynst þeim vel. Það er stundum ekkert að því að fresta vinnunni sinni. En, ef þetta snýst um baobab-tré, endar það með ósköpum. Ég veit um plánetu, þar sem letingi átti heima. Hann leyfði þremur trjám að vaxa í friði...“

Svo í samræmi við lýsingar litla prinsins teiknaði ég þessa plánetu. Ég vil nú helst ekki fara að hljóma eins og einhver siðferðispostuli. En fólk er almennt ekki mjög meðvitað um hættuna af baobab-trjánum og áhættan fyrir einhvern sem er fastur á loftsteini er töluverð, þannig að í þetta skiptið geri ég undantekningu. Ég segi: „Krakkar! Passið ykkur á baobab-trjánum!“ Það er til að forða vinum mínum frá hættu sem þeir gætu lent í, rétt eins og ég sjálfur, án þess að vera meðvitaðir um það, að ég teiknaði þessa mynd. Lexían sem ég kenni með því er vel þess virði. Þið spyrjið ykkur kannski: Af hverju eru ekki líka aðrar myndir í bókinni, sem eru jafn flottar og þessi af baobab-trjánum? Svarið er nokkuð einfalt: Ég reyndi, en mér tókst bara ekki betur en þetta. Þegar ég teiknaði baobab-trén var ég drifinn áfram af tilfinningunni um að ég gæti komið í veg fyrir neyðartilvik.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE