×

LingQをより快適にするためCookieを使用しています。サイトの訪問により同意したと見なされます クッキーポリシー.

Litli Prinsinn, Kafli 14 – 読むためのテキスト

Litli Prinsinn, Kafli 14

中級 1 アイスランド語 の読み練習用レッスン

今すぐこのレッスンを開始

Kafli 14

KAFLI XIV

Fimmta plánetan var mjög sérkennileg. Hún var minnst af þeim öllum. Það var bara rétt nóg pláss til að þar kæmust fyrir götulampi og maður sem tendraði hann. Litli prinsinn gat ómögulega séð fyrir sér hverjum það þjónaði að hafa götulampa og mann til að tendra hann, einhvers staðar í geimnum, á plánetu þar sem voru engin hús og engir íbúar. Samt sem áður sagði hann við sjálfan sig:

-Það getur vel verið að þessi maður sé fáránlegur. Samt er hann ekki eins fáránlegur og konungurinn, monthaninn, viðskiptajöfurinn eða fyllibyttan. Vinnan hans er allavega rökrétt. Þegar hann tendrar götulampann, þá er það eins og að láta nýja stjörnu fæðast, eða nýtt blóm. Þegar hann slekkur á lampanum þá sofnar blómið eða stjarnan. Það er fallegt starf. Það er gagnlegt af því að það er fallegt.

Þegar hann kom á plánetuna heilsaði hann tendraranum af virðingu:

-Góðan daginn. Af hverju ert þú að kveikja á götuljósinu?

-Þannig eru fyrirmælin, svaraði tendrarinn. Góðan daginn.

-Hver eru fyrirmælin?

-Þau eru að tendra lampann minn. Góða kvöldið.

Og hann kveikti aftur á honum.

-En af hverju ertu aftur að fara að kveikja á honum?

-Þannig eru fyrirmælin, svaraði tendrarinn.

-Ég skil ekki, sagði litli prinsinn.

-Það er ekkert að skilja, sagði tendrarinn. Fyrirmæli eru fyrirmæli. Góðan daginn.

Og hann slökkti á götulampanum.

Síðan þurrkaði hann svitann af enninu með vasaklúti með rauðum ferningum á.

-Þetta er ömurleg vinna. Hún var einu sinni sanngjörn. Ég slökkti á morgnana og ég tendraði á kvöldin. Ég hafði afganginn af deginum til að hvíla mig og afganginn af nóttunni til að sofa...

-Og breyttust fyrirmælin síðan?

-Fyrirmælin breyttust ekki, sagði tendrarinn. Það er vandamálið! Plánetan snýst hraðar og hraðar með hverju árinu og fyrirmælin hafa ekkert breyst!

-Sem þýðir hvað? spurði litli prinsinn.

-Sem þýðir að úr því að hún snýst einn hring á hverri mínútu, fæ ég ekki sekúndu hvíld. Ég tendra og ég slekk einu sinni á mínútu!

-Það er sniðugt! Dagarnir hjá þér taka bara mínútu!

-Það er alls ekkert sniðugt, sagði tendrarinn. Það er nú þegar liðinn mánuður frá því að við byrjuðum að tala saman.

-Heill mánuður?

-Já, þrjátíu mínútur. Þrjátíu dagar! Góða kvöldið.

Og hann tendraði aftur lampann.

Litli prinsinn horfði á hann og honum líkaði vel við þennan tendrara sem var svona trúr sínum fyrirmælum. Hann minntist sólsetranna sem hann eltist sjálfur við, með því að færa sætið sitt úr stað. Hann vildi hjálpa þessum nýja vini sínum:

-Veistu... ég veit um aðferð til þess að þú getir hvílt þig þegar þú vilt...

-Mig langar það stöðugt, sagði tendrarinn.

Því stundum getur maður verið bæði latur og trúr sínum skyldum í einu.

Litli prinsinn hélt áfram:

-Plánetan þín er það lítil að þú getur farið hringinn kringum hana í þremur skrefum. Þú þarft ekki annað en að ganga hægt áfram til að það sé alltaf dagur hjá þér. Ef þú vilt hvíla þig þá gengur þú bara áfram... og dagurinn verður eins langur og þú vilt.

-Það hjálpar mér ekki mikið, sagði tendrarinn. Því það sem mér þykir vænst um í lífinu, það er að fá að sofa.

-Það er nú ekki heppilegt, sagði litli prinsinn.

-Það er nú ekki heppilegt, sagði tendrarinn. Góðan daginn.

Og hann slökkti á götulampanum.

Þessi maður, sagði litli prinsinn við sjálfan sig á meðan hann hélt ferðalagi sínu áfram, þessi maður væri fyrirlitinn af öllum hinum, af konunginum, monthananum, fyllibyttunni og viðskiptajöfrinum. Á sama tíma er hann sá eini sem kemur mér ekki fáránlega fyrir sjónir. Kannski er það af því að hann er sá eini sem er ekki bara að hugsa um sjálfan sig.

Hann stundi af eftirsjá og sagði svo við sjálfan sig:

-Þessi var sá eini sem ég hefði getað vingast við. En plánetan hans er virkilega of lítil. Það er ekki pláss á henni fyrir okkur báða...

En það sem prinsinn þorði ekki að játa fyrir sjálfum sér var að hann sá eftir þessari blessuðu plánetu fyrst og fremst vegna eitt þúsund og fjögur hundruð sólsetranna á tuttugu og fjórum tímum!

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE