×

LingQをより快適にするためCookieを使用しています。サイトの訪問により同意したと見なされます クッキーポリシー.

Litli Prinsinn, Kafli 11 – 読むためのテキスト

Litli Prinsinn, Kafli 11

中級 1 アイスランド語 の読み練習用レッスン

今すぐこのレッスンを開始

Kafli 11

KAFLI XI

Á næstu plánetu bjó monthani:

-Sko! Sko! Nei sko, þarna kemur aðdáandi í heimsókn! hrópaði monthaninn á sama augnabliki og litli prinsinn birtist.

Af því að í augum monthana eru allir menn aðdáendur.

-Góðan daginn, sagði litli prinsinn. Þú ert með fyndinn hatt.

-Hann er til að heilsa, svaraði monthaninn honum. Hann er til að heilsa, þegar fólk klappar fyrir mér. Því miður kemur bara aldrei neitt fólk hingað.

-Virkilega? sagði litli prinsinn og skildi ekki neitt.

-Sláðu lófunum saman, stakk monthaninn upp á.

Litli prinsinn sló lófunum saman. Monthaninn hneigði sig og tók ofan hattinn.

-Þetta er skemmtilegra en að heimsækja konunginn, sagði litli prinsinn við sjálfan sig. Hann fór aftur að klappa saman lófunum. Monthaninn fór aftur að hneigja sig og taka ofan hattinn.

Eftir fimm mínútur af þessu fór litli prinsinn að þreytast á því hversu einhæfur þessi leikur var:

-Og hvað þarf maður að gera til þess að þú látir hattinn detta?

En monthaninn heyrði ekki í honum. Monthanarnir heyra ekkert nema lof.

-Dáist þú að mér? spurði hann litla prinsinn.

-Hvað þýðir að dást að?

-Að dást að þýðir að skilja að ég er fallegasti, best klæddi, ríkasti og gáfaðasti maðurinn á plánetunni.

-En þú ert einn á þessari plánetu!

-En gerðu það mér til geðs að dást að mér engu að síður!

-Ég dáist að þér, sagði litli prinsinn og yppti öxlum, en af hverju ættir þú að vilja að ég geri það?

Og litli prinsinn fór.

Fullorðna fólkið er virkilega furðulegt, sagði hann við sjálfan sig á meðan hann flaug í gegnum geiminn.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE