×

LingQをより快適にするためCookieを使用しています。サイトの訪問により同意したと見なされます クッキーポリシー.

Einfalt Eintal, Hvað á maður að gera á Íslandi? (2) – 読むためのテキスト

Einfalt Eintal, Hvað á maður að gera á Íslandi? (2)

中級 1 アイスランド語 の読み練習用レッスン

今すぐこのレッスンを開始

Hvað á maður að gera á Íslandi? (2)

En það sem að sumir gera er að fara hringinn í kringum Ísland og það er líka mjög, mjög fallegt á til dæmis Vestfjörðum. Það er svolítið langt að keyra þangað. Og það er mjög fallegt á Norðurlandi og Norðausturlandi finnst mér sérstaklega fallegt og á Austurlandi, en það tæki of langan tíma að tala um það allt. Margir keyra á Akureyri á norður Íslandi og skoða til dæmis Mývatn og svo Dettifoss og Ásbyrgi á norðaustur Íslandi, og ýmsa staði. Eh, það er mjög gott að fara í hvalaskoðun á Norðurlandi. Húsavík og Akureyri og fleiri stöðum. Austurland er líka mjög fallegt. Þar er, er elsti og stærsti skógurinn á Íslandi og margt að, að sjá. En eh, ef ég eins og ég segi ef ég myndi tala um það allt þá mundi ég bara taka allt of langan tíma og ég vil ekki hafa þessa þætti neitt rosalega langa. Þannig ég ætla að kveðja ykkur núna og við heyrumst seinna.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE