×

LingQをより快適にするためCookieを使用しています。サイトの訪問により同意したと見なされます クッキーポリシー.

Icelandic Online Level 3, Veðrið – 読むためのテキスト

Icelandic Online Level 3, Veðrið

中級 1 アイスランド語 の読み練習用レッスン

今すぐこのレッスンを開始

Veðrið

PÓSTHÚSSTRÆTI LOKAÐ VEGNA VEÐURS

Pósthússtræti verður lokað fyrir bílaumferð í dag og um helgina vegna veðurs. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að loka götunni í góða veðrinu. Þegar bílaumferð er bönnuð í miðbænum á góðviðrisdögum breytist hann mikið. Þá nýtur fólk lífsins á Austurvelli og á veitingastöðunum í kring. Allir sitja úti og eru lausir við bílaumferð um Pósthússtræti. Það er eins gott að njóta góðu daganna þegar þeir koma! Þá nennir enginn að sitja inni.

SKAMMDEGIÐ

Íslendingar þekkja skammdegið vel. Á veturna er dagurinn mjög stuttur og mikið myrkur. Sumum líður vel í myrkri en aðrir sakna birtunnar. Skammdegið getur haft neikvæð áhrif á fólk. Sumir verða kraftlausir, mislyndir, eiga erfitt með svefn, hafa meiri matarlyst og verða ófélagslyndir. Svona andleg vanlíðan getur verið merki um skammdegisþunglyndi. Þunglyndið byrjar þá þegar sólin lækkar á lofti á haustin en hverfur oftast með hækkandi sól á vorin.

GÓÐ LEIÐ TIL AÐ KYNNAST ÍSLENDINGUM

Heiti potturinn er frábær staður til að hitta fólk í Reykjavík. Þar situr fólk og spjallar um það helsta sem er að gerast í samfélaginu. Þar verða umræðurnar oft mjög heitar! Í könnun, sem var gerð, kom í ljós að 47% ferðamanna töluðu við annað fólk í pottinum. Það er því gott ráð fyrir útlendinga að fara í heita pottinn til að fræðast um lífið í Reykjavík, um bestu veitingastaðina og hvað er að gerast í borginni. Stressið hverfur í heita pottinum og þar er auðvelt að kynnast þjóðarsálinni!

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE