×

Utilizziamo i cookies per contribuire a migliorare LingQ. Visitando il sito, acconsenti alla nostra politica dei cookie.

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, 1000 stjörnur – Testo da leggere

Guðrún Kristín Magnúsdóttir: Barnabækur, 1000 stjörnur

Principiante 2 lezione di di islandese per praticare la lettura

Inizia a seguire questa lezione ora

1000 stjörnur

Þúsund stjörnur. Barnið sem átti að fara að sofa horfði út um gluggann og sagði: „Amma, sjáðu stjörnurnar.“ Amma leit út um gluggann, út í haustnóttina, sá á regnið og skýin sem voru bleik yfir borginni, það var svo lágskýjað. „Ég sé engar stjörnur, vinur minn, það er rigning og alskýjað. Farðu nú að sofa, elsku barn.“

„Jú, amma, þarna í trénu.“ Lauflausar, svartar greinar trjánna voru votar og í þeim öllum héngu regndropar. Þeir glitruðu eins og kristall því birtan frá ljósastaurunum á bak við þá gerði úr þeim þúsund stjörnur handa barninu sem var að fara að sofa. Barnið horfði á dropana falla einn og einn eins og silfurtár í kyrrðinni. Tár sem urðu svo stór að þau urðu að detta. Tindrandi ofan í frerasvörð.

„Amma, tréð grætur stjörnum.“

Barnið brosti og barnið horfði á stjörnurnar sínar þar til svefninn sigraði augnalokin og regndropar héldu áfram að vera regndropar.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE