Stefnuljós
Af hverju sleppum við því að gefa það sem við viljum svo gjarnan að aðrir gefi okkur, stefnuljós?
Afsakanir eins og það að þurfa ekki að gefa stefnuljós vegna þess að það sé enginn nálægur eru yfirleitt ekki réttar. Við sjáum ekki allt og alla í kringum okkur.
Það er því betra og reyndar skylt að gefa stefnuljós alltaf þegar við beygjum á vegamótum,
ökum inn á og eftir frárein,
ökum af aðrein og inn á veg,
ökum að eða frá brúm vegar,
skiptum um akrein,
ökum fram úr öðru ökutæki og aftur inn á sömu akrein eftir framúrakstur,
ökum inn í eða út úr bílastæði,
ökum út úr hringtorgi,
ökum á ytri hring torgs fram hjá útakstursleið af torginu,
breytir akstursstefnu við akstur aftur á bak,
eða ef við viljum gefa öðrum ökumönnum til kynna að ekki sé óhætt að taka fram úr. Já, eða gefa merki um að óhætt sé að fara fram úr.
Sóum ekki verðmætum tíma okkar og annarra. Tryggjum flæði umferðar og aukum öryggi allra með því að nota stefnuljós. Venjum okkur einfaldlega á að gefa alltaf stefnuljós þar til við gerum það ósjálfrátt. Það er nefnilega svo gott að gefa stefnuljós.