×

Utilizziamo i cookies per contribuire a migliorare LingQ. Visitando il sito, acconsenti alla nostra politica dei cookie.

image

Brennu Njáls saga - stytt og einfölduð, 8. Helgi reynir að flýja

8. Helgi reynir að flýja

„Flosi? Heyrirðu í mér?“ kallar Njáll hátt.

„Já, ég heyri í þér. Hvað viltu?“ svarar Flosi.

„Viltu nú ekki bara sættast við syni mína og segja þetta gott?“ spyr Njáll.

„Nei, það er ekki nokkur séns á því,“ svarar Flosi.

„Jæja, en má kannski eitthvað af fólkinu mínu fara út?“ spyr Njáll.

„Hm, jæja, ég get leyft konum, börnum og vinnufólki að fara út,“ svarar Flosi.

Njáll snýr sér að fólkinu sínu: „Jæja, þið heyrðuð í manninum. Út með ykkur! Þórhalla, farðu nú út.“

„Ég hélt nú ekki að ég myndi kveðja hann Helga minn svona,“ segir Þórhalla, kona Helga Njálssonar. „Ég læt bræður mína

hefna hans.“

„Takk fyrir það, Þórhalla mín. Þú ert góð kona," segir Njáll.

Ástríður, kona Gríms Njálssonar, segir við Helga Njálsson: „Ég get ekki skilið þig eftir, Helgi. Komdu með mér, við setjum á þig slæðu svo að þú lítir út eins og kona.“

„Það er fáránleg hugmynd,“ segir Helgi Njálsson.

„En það er engin önnur leið fyrir þig að komast héðan út,“ segir Ástríður.

Ástríður setur slæðu á Helga og þau fara með hópnum út úr brennandi húsinu.

Flosi lítur á hópinn. „Mikið er þessi kona þarna eitthvað hávaxin. Og mikið er hún með breiðar axlir. Strákar, stöðvið þessa konu.“

Helgi heyrir þetta og hendir af sér slæðunni. Hann tekur sverðið sitt og

heggur fótinn af vini Flosa.

Flosi kemur þá og heggur höfuðið af Helga.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE