4. Hannes og Surtarbrandur
Hannesar saga Grásteins. Fjórða bók. Hannes Grásteinn og Surtarbrandur. Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur.
Hannesar saga Grásteins, fjórða bók. Hannes Grásteinn og Surtarbrandur.
Við lesum myndir, við lesum stuttan texta og við lesum langa sögu. Hannesar saga Grásteins er sönn saga.
Elra Gúlla leiddist eftir að Hafri bróðir hans varð fyrir bíl og dó. Elri leitaði aðeins úti og inni í marga daga. Elri aleinn.
Á hverju kvöldi þurfti hann svo að svæfa alla eigendurna sína aleinn og það er ekki lítið starf.
-Ég má hafa hann fyrst núna, þú fékkst að hafa hann fyrstur í gærkvöldi.
-Það var bara af því að ég var á undan að bursta í mér tennurnar. Þú átt eftir að bursta í þér tennurnar, góða.
-Ég má.
Branda Bröndudóttir á Nesinu, -- mamma Hafra og Elra Gúlla -- var búin að gjóta á ný. Branda gaut.
Hún gaut í ágúst.
Elri hafði eignast fjölda systkina sem, hann hafði ekki hugmynd um að væru til.
Þurfti honum þá að leiðast lengur?
Það varð úr að við fórum til Dóru og fengum aftur tvo kettlinga undan Bröndu, -- þegar þeir voru orðnir nógu stórir til að fara frá mömmu sinni.
Fáum tvo.
Annar kettlingurinn var svartbröndóttur, gljáandi, með leiftursnögg augu eins og Hafri bróðir hans hafði haft.
Hinn: gulur, feitur og úfinn bómullarhnoðri; auk þess ákaflega syfjaður.
Á heimleiðinni vildu allir krakkarnir fá að halda á kassanum með nýju kettlingunum í.
Svartbröndótti kettlingurinn horfði skelfdur upp úr kassanum á þessa hávaðasömu, tröllauknu mannaunga.
Nöfn á þá.
-Við megum ekki gera dýrin hrædd. Við skulum frekar klóra þeim ósköp varlega á bak við eyrun og nota tímann á heimleiðinni til að finna góð nöfn handa þeim.
Ákveðið var að svartbröndóttur skyldi nefndur Surtarbrandur.
Surtarbrandur var ekki lengur hræddur.
Hann gægðist lengra og lengra upp úr kassanum og reyndi síðan að príla upp úr.
Það ætlaði greinilega að verða sama fjörið og fyrirferðin í Surtarbrandi og var í Hafra sáluga.
Forvitinn.
En gulur, hnöttóttur hnoðri hefir litlar áhyggjur af því sem fram fer.
Hann sefur sem fastast.
Rifrildið í nýju eigendunum og leikurinn í Surtarbrandi raska ekki ró hans.
Þess vegna er hann nefndur Hannes.
Hannes sefur.
Það er í höfuðið á Hannesi, skapgóða stráknum, sem er vinur Magnúsar.
Sá Hannes nennir aldrei að standa í rifrildi eða áflogum.
Hannes Grásteinn.
-Hvers vegna Grásteinn?
-Bara.
Þegar heim kemur er Elri, stóri bróðir, lítt feginn nýja félagsskapnum.
Elri er fúll.
Lítt tjóir að segja honum, að þetta séu bræður hans.
Nú fái hann félaga í stað Hafra sáluga. Nú þurfi hann ekki aleinn að svæfa alla krakkana. Elri Gúlli leggur kollhúfur, þegar hann sér þessa litlu, ljótu hnoðra staulast að mjólkurskálinni -- mjólkurskálinni hans!
-Puh. Það er fýla af þeim.
Elri gengur út með fyrirlitningarsvip.
Elri fer.
Þeir lepja mjólk. Við reynum að sleikja úr Elra. Hann þykist nú vera orðinn nógu stór köttur til að vera úti á nóttunni. Hvernig sem við reynum að vera góð við hann, kemur hann æ sjaldnar heim. Hefur Elri fundið sér nýjan samastað? Það vitum við ekki.
Við reynum að spyrjast fyrir um hvar hann haldi sig. Kettir eru allt of sjálfstæðir til að spyrja aðra um, hvað þeim henti best.
Óháður velur kötturinn sér heimili á þeim stað er honum líkar.
Elri Gúlli yfirgefur okkur. Honum mislíkar og flytur að heiman. Við vitum ekki hvert.
Elri fer.
Hannes grásteinn, stóri, guli bómullarhnoðrinn, vaknar og teygir sig letilega.
Hannes.
Hannes teygir sig.
Surtarbrandur stekkur.
Surtarbrandur hendist upp og fær sér trimmsprett á þvottahúsgólfinu -- frá þvottabalanum yfir klemmuboxið og...
...sem Hannes grásteinn ætlar að fara að fá sér smá mjólkurlögg að lepja, liggur leið spretthlauparans einmitt þar hjá, -- með smáskvettu.
Hannes dettur á kjammann ofan í mjólkurskálina.
Hannes dettur.
Þetta gerir svo sem ekki mikið til. Þörf er á þvotti hvort eð er. Surtur er á bak og burt. Hann hjálpar ekki hið minnsta við hreingerninguna.
Þvottur.
En þegar Hannes er til í tuskið, er eins gott fyrir Surtarbrand að hlaupa hratt.
Hannes til í hasar.
Hannes er svo miklu stærri og þyngri, að Surtarbrandur lendir alltaf undir í áflogunum.
Svo kemur fiskbitinn: Afgangur af ýsu með tómatsósu!
Þá er tilvalið að byrja að kenna kettlingunum að koma þegar kallað er á þá.
-Hannes kis-kis!
-Surtarbrandur kis-kis!
Hannes og Surtarbrandur fá sér ríflega í svanginn. Einkum Hannes feitabolla. Nóg er af góðum bitum í ruðunum. Að vísu virðast börnin nota óþarflega mikla tómatsósu.
Þeir éta.
Það getur verið þreytandi að hamast í kettlingaleikjum alla daga og það er örugglega mjög hollt að hvíla sig eftir matinn.
Það virðast kettir vita.
Á kvöldin sofna þreyttir kettlingar. Gott er að láta sér líða vel í hlýju og öryggi. Þeir fara að sofa.
Hér endar fjórða bók Hannesar sögu Grásteins. Fjórða bók af tuttugu. Hannes Grásteinn og Surtarbrandur.
Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu
Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins
Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli
Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist
Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur
Fimmta bók: Kettlingunum stolið
Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar
Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman
Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum
Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða
Tíunda bók: Hannes veiðikló
Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?
Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi
Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara
Fjórtánda bók: Milli
Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar
Sextánda bók: Nýi kettlingurinn
Sautjánda bók. Vor í lofti
Átjánda bók. Hannes fer í sveit
Nítjánda bók. Hvolparnir
Tuttugasta bók. Dánartilkynning
(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)
Útgefandi Freyjukettir, Norræn menning.
Mjá.
Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.
Mjá.