×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Hannesar saga Grásteins, 2. Branda Bröndudóttir og synir he… – Text to read

Hannesar saga Grásteins, 2. Branda Bröndudóttir og synir hennar Hafri og Elri Gúlli

Intermediate 1 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

2. Branda Bröndudóttir og synir hennar Hafri og Elri Gúlli

Hannesar saga Grásteins, önnur bók. Branda Bröndudóttir og synir hennar Hafri og Elri Gúlli. Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur. Hannesar saga Grásteins. Branda Bröndudóttir og synir hennar Hafri og Elri Gúlli.

Hannesar saga er skrifuð handa ungu lesendunum. Við lesum myndir, við lesum stuttan texta og við lesum langa sögu.

Hannesar saga Grásteins er sönn saga.

Önnur bók, Branda Bröndudóttir, og synir hennar, Hafri og Elri Gúlli.

Þegar kettlingarnir hennar Bröndu skottlausu stálpuðust, urðu þeir æði fyrirferðarmiklir í bílskúrnum.

Oft komu líka krakkar í heimsókn til þess að skoða kettlingana.

Margir vildu fá að eiga kettling en, ekki mega allir hafa kettling heima hjá sér.

Dóra ákvað að gefa þrjá af kettlingunum.

En fyrst urðu börnin að fá leyfi hjá pabba og mömmu. Fjórða kettlinginn, sem var bröndótt læða - alveg eins og mamma hennar, nema auðvitað með skott -- ákvað Dóra að eiga sjálf.

Þeir leika sér. Branda litla Bröndudóttir stækkaði brátt. Auðvitað komu allir högnarnir á nesinu í heimsókn.

Branda.

Enda leið ekki á löngu þar til Branda yngri gaut.

Þá þurfti Dóra aftur að fara að gefa kettlinga.

Við fengum þessa tvo undan Bröndu, þegar þeir voru orðnir nógu stórir til að lepja sjálfir.

Hafri og Elri.

Annar - bröndóttur alveg eins og mamma hans og amma - var nefndur Hafri.

Hinn – gulbröndóttur - kallaðist Elri Gúlli. (Eru það nú nöfn, sem krakkar geta fundið upp!)

Svo þarf auðvitað að kenna kettlingunum að fara í dallinn sinn. Við fengum sag á smíðaverkstæði. Það lyktar minna en sandurinn.

Að pissa.

Þegar Hafri og Elri Gúli stálpuðust, fengu þeir að fara út um kjallaragluggann út í garð.

Það þótti okkur mjög gott, því litlum kattaeigendum þykir ekki gaman að þrífa pissudall.

Úti.

Hafri og Elri nutu þess að tuskast í grasinu. Allt í einu stökk Hafri á harðaspretti inn um gluggann. Elra brá. Hvað hafði Hafri séð? Elra fannst vissara að hlaupa líka inn. Ef til vill var kominn í garðinn óvættur grimm að hremma þá.

Hafri - sem var driffjöðrin í öllum leikjunum - hlaut að hafa séð eitthvað stórhættulegt.

Inn.

Hafri stökk alla leið fram í þvottahús - í dallinn sinn. Hann þurfti aðeins að gera svolítið. Hafri pissar inni.

Svo gat hann farið út aftur að leika sér. Fjörið í Hafra var óþrjótandi. Stundum ofbauð Elra Gúlla gersamlega hamagangurinn í bróður sínum. Elri vildi nú fá frið til að sofa svona einstöku sinnum.

Elri Gúli.

Fluga.

En það væri synd að segja að Elri væri ekki nytsamlegt húsdýr. Hann var stöðugt á flugnaveiðum. Enda var glugginn uppáhaldsstaðurinn, þegar litlu kettlingarnir fengu ekki að vera úti.

Kvöld eitt kom stór fressköttur í garðinn. Hann gekk um á milli trjánna eins og ljón í skógi. Hafliði skaut upp kryppu og hvæsti.

(Honum var alveg óhætt,

því kettlingarnir voru inni

en ófreskjan úti

--og glugginn nærri því lokaður.)

Fress kom og fór burt.

Sá stóri lífsreyndi lét sér fátt um finnast slík kettlingalæti.

Hann gekk burt jafn rólegur og yfirvegaður og hann kom.

En í næsta sinn lét hann sér ekki nægja að ganga um í garðinum.

Við vorum ekki heima.

Hann bauð sjálfum sér inn, enda eldhúsglugginn ekki lokaður.

Hann tróð sér inn um gluggann, át allan fiskinn frá kettlingunum og fékk sér dúr í einu rúminu.

Þar svaf hann vært þegar við komum heim.

Hann kom inn.

En kettlingarnir voru hvergi sjáanlegir. Við leituðum og kölluðum:

Hvar gátu tveir bræður bröndóttir verið?

Gat verið að þeir hefðu komist út um eldhúsgluggann?

Nei.

Þeir gátu ekki hoppað upp í gluggann, nema þegar borðið var undir glugganum.

Við tókum borðið alltaf frá þegar við fórum að heiman.

Hvar eru Hafri og Elri?

Svo kom í ljós, að hetjurnar kúrðu í hnipri inni í uppvafinni gólfábreiðu -- og þorðu ekki að láta á sér kræla fyrr en sá stóri svarti hafði verið fjarlægður.

Hafri var ekki mjög borubrattur í þetta skiptið.

Þarna.

Um kvöldið sofnuðu börn og dýr áhyggjulaus. Úti var björt sumarnóttin. Hver dagur beið eftir óþrjótandi leikjum - sumarleikjum barna og kettlinga.

Sofandi.

Hér endar önnur bók Hannesar sögu Grásteins, önnur bók af tuttugu, Branda Bröndudóttir og synir hennar, Hafri og Elri Gúlli.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Útgefandi Freyjukettir, Norræn menning.

Mjá.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Mjá.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE