×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Hannesar saga Grásteins, 18. Hannes fer í sveit – Text to read

Hannesar saga Grásteins, 18. Hannes fer í sveit

Intermediate 1 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

18. Hannes fer í sveit

Hannesar saga Grásteins, átjánda bók: Hannes fer í sveit. Eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur.

Hannesar saga Grásteins, átjánda bók af tuttugu: Hannes fer í sveit.

Freyjukettir, Norræn menning.

Hannes gætir þess vandlega að gleymast ekki í bænum, þegar við flytjum í sveitina til sumardvalar. En ofsalega sem hann kvíðir fyrir bílferðinni. Hann byrjar að vorkenna sér löngu áður en við leggjum af stað. Kannski ekki að furða þótt hann hafi illan bifur á þessum hávaðaófreskjum.

Hannes fer í sveit.

Strax og hann sér að við erum að pakka fer hann að hafa góðar gætur á okkur. En Surtur er með algjöra bíladellu. Hann stekkur inn í bílinn, út aftur, upp á bílinn, undir bílinn og situr að lokum á framöxlinum þar sem ómögulegt er að ná honum. Það er engin leið að hemja fjörið í þessum ærslabelg.

-Surtur minn, komdu nú.

Loks er allt tilbúið. Loks hægt að leggja af stað. Hannes læsir í mig klónum þegar ég ber hann út í bíl.

-Hannes minn, komdu.

Hann vill ekki láta skilja sig eftir og hann vill heldur ekki fara í bíl. Surtur er orðinn svo þreyttur eftir allan hamaganginn í sjálfum sér, að hann malar sig í svefn í kjöltu Kristínar. Steinsefur alla leiðina austur í sveitir. En Hannesi finnst þetta hræðileg ferð. Hann mjálmar, vælir angistarveini -- eða skulum við segja, „breimar” í sífellu alla leiðina austur.

<Mjá. Mjá.>

Í bílnum.

Og Hannes, -- sem aldrei pissar nema á afviknum stað -- sprænir í fatahrúgu af einskærri angist. Loks komumst við á leiðarenda. Hannes þefar út í loftið. Hann er varkár á nýjum stað.

Hann finnur fljótt að hér er gaman að vera. Surtur litli er settur beina leið inn í hús. Lokaður inni í herbergi. Hann er vís til að byrja á að týnast -- og jafnvel leggjast alveg út.

Í sveit.

Kettlingurinn er ekki í neinum vandræðum með að hafa ofan af fyrir sér inni. Hann hendist rúm úr rúmi, upp á stóla, upp á borð -- og skápa svo allt er sem í hers höndum.

Hasar og læti.

Surts er vandlega gætt, þegar hann fær að skreppa út. Surti dettur aldrei í hug að gegna nafninu sínu þegar kallað er á hann og oftast er Kristín í stökustu vandræðum með að ná honum.

Hannes hefur góðar gætur á ferðum okkar. Hann ætlar svo sannarlega að gæta þess að við stingum hann ekki af hér á þessum nýja stað.

Hannes mjálmar.

Hann eltir okkur niður í fjöru, þegar við förum að vitja um.

Hýrnar nú heldur en ekki yfir honum þegar við komum með fiskinn. Slórlykt er all-spennandi fyrir svanga kisu. Hannes fær líka vænan bita.

Hann fær fisk.

Eftir þetta fer hann daglega með okkur niður að báti og bíður rólegur í fjörunni, meðan við vitjum um. Það borgar sig vel.

Hér er fleira skemmtilegt en nýr fiskur: Fuglatíst á hverri þúfu.

Hannes sér fugla.

Ekki líður heldur á löngu þar til Hannes færir mér fugl. Hann leggur fuglinn bráðlifandi á hlaðið að fótum mér. Þetta var gjöf til mín! Veiðistoltið leynir sér ekki.

Ég get ekki annað en hrósað honum. Ég snerti ekki fuglinn, sem virðist algjörlega óskaddaður. Svo laust hefur Hannes haldið honum milli tannanna, að ekkert sér á honum.

Til þess að Hannes endurtaki þetta ekki --veiðiklóin sú -- fer ég með hann inn í bæ. Hann er malandi af ánægju og stolti. Hann veit ekki að ég er svo fölsk að ég ætla að loka hann inni, þar til ungarnir verða betur fleygir.

Ég læt Hannes inn.

Unginn á hlaðinu er fljótur að jafna sig. Hann hefur aðeins verið stjarfur af hræðslu eða eðlislægum viðbrögðum, til þess að rándýrinu finnist hann vera dauður. Unginn skýst brott strax og hættan er liðin hjá.

Það er ekki skemmtilegt fyrir Hannes að þurfa nú að húka inni í góða veðrinu í margar vikur, meðan ungarnir veltast hálffleygir milli þúfna.

Lokaður inni.

Hann horfir á hraðfleygan smyrilinn steypa sér ofan kletta með ljótu gargi og elta smáfuglana, sem flýja eins og þrek þeirra og snerpa leyfir. Það er upp á líf og dauða. Allir eiga þeir svanga unga. Þá mjálmar Hannes veiðimjálmi: -mja-a-a-a-a-a-a

--sem er ofurlágt og þrunginn sársaukafullri óuppfylltri þrá til að lifa sitt náttúrulega eðli: að drepa sér til matar.

Hrafn á veiðum.

Hrafninn kemur af og til í ránsferðir. Hann þarf að fæða sína gráðugu unga í laup sínum í klettagjá. Honum gengur oft illa að hefja sig til flugs með þrastarunga í gogginum -- og árás ævareiðra og sorgbitinna foreldranna yfir höfði sér.

Hannes horfir út um gluggann á veiðiglaða krakkana koma stolta heim með smáfisk veiddan á stöng.

Krakkar veiða.

Fullorðna fólkið tínir fiskinn úr netunum. Og: hvernig stendur á því að mannfólkið tekur gæs upp úr frystikistu?

Það er svo sem ágætt að fá nýjan fisk, en leiðinlegt að fá ekki að veiða sjálfur. Gómsætt slógið lendir svo í minkagildrunni. Fólkið ætlar svo sem að veiða mink. Stundum er slógið notað sem agn fyrir svartbak.

Fólkið ætlar svo sem að drepa veiðibjölluna, til þess að hún leggist ekki í egg og unga. En Hannes fær ekki að veiða. Surtur hefur ofan af fyrir sér með flugnaveiðum: Það eru fiskiflugur í glugganum og húsflugur á eldhúsborðinu.

Surtur þeytist um allt. Hannes er löngu vaxinn upp úr flugnaveiðum. Hannes leggst í mýksta stólinn í stofunni og ætlar að fá sér lúr.

Hannes sefur.

Honum leiðist að fá ekki að vera úti. Það er líka hollt og gott að láta belgfylli af hráum fiski sjatna í sér í ró og næði. -- Þetta gera ljónin. -- En Surtur finnur nú ekki fleiri flugur til að veiða, en hefur ofgnótt fjörs. Það er ekkert spaug að vera ungt rándýr -- lokað inni -- og heyra fuglakvakið og ungatístið útifyrir. Surtur gengur berserksgang.

Surtur tekur rispu.

Auðvitað fær Hannes engan frið, því hann er hluti af leiktækjunum hans Surts. Surtur vekur Hannes. Hannes á ekki annarra kosta völ en að leika örlítið við ófögnuðinn, enda veitir ekki af að kenna honum almennilega kattatilburði.

Það er hræðileg niðurlæging fyrir Hannes að vera bent á pissudall eins og hafður er fyrir kettlinga: gamalt vaskafat með sagi og sandi í.

Hannes fær ekki að fara út.

Enginn opnar fyrir honum þegar hann mjálmar við dyrnar og þarf nauðsynlega að komast út. Hannes kom að vísu fram hefndum með því að spræna duglega í hundabælið. Ekki er um annað að ræða en að hoppa upp í stól.

Hannes þvær sér.

Gestaspjót.

Þegar kisa þvær sér svona, er sagt að hún setji upp gestaspjót. Það spáir gestakomu. Auðvitað bregst hjátrúin aldrei, því staðreyndum er alltaf hægt að hagræða. Að þessu sinni kom gestur tveimur dögum síðar.

Hannes er óttalega móðgaður þegar hann er rekinn upp úr uppáhaldsstólnum sínum og einhver gestur fær sæti þar. Þegar loks stóllinn er endurheimtur, þarf Hannes að rannsaka gaumgæfilega hina framandi lykt sem gesturinn hefur skilið eftir. Það er oft einhvers konar fjósalykt eða önnur dýralykt.

Framandi lykt -- í Hannesar einkastóli!

Hannes snýr sér oftast í þrjá hringi áður en hann er ánægður með bælið sitt. Það er dýrmætur eiginleiki að geta fundið eirð og vera sjálfum sér nógur, þótt ævintýrin séu útilokuð.

Svo er gott að kúra hjá krökkunum um bjartar sumarnætur.

Í ró.

Hér lauk átjándu sögu. Hannes fer í sveit.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur eftir Guðrúnu Kristínu

Fyrsta bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins

Önnur bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli

Þriðja bók: Hafri fer sér að voða, Eldra-Gúlla leiðist

Fjórða bók: Hannes Grásteinn og Surtarbrandur

Fimmta bók: Kettlingunum stolið

Sjötta bók: Dýna sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar

Sjöunda bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Áttunda bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Níunda bók: Surtarbrandur fer sér að voða

Tíunda bók: Hannes veiðikló

Ellefta bók. Hefur kötturinn níu líf?

Tólfta bók. Hannes flytur í nýtt hverfi

Þrettánda bók. Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara

Fjórtánda bók: Milli

Fimmtánda bók: Snjótittlingaveiðar

Sextánda bók: Nýi kettlingurinn

Sautjánda bók. Vor í lofti

Átjánda bók. Hannes fer í sveit

Nítjánda bók. Hvolparnir

Tuttugasta bók. Dánartilkynning

(þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)

Útgefandi: Freyjukettir, Norræn menning.

Mjá.

Hannesarsaga Grásteins. Tuttugu skemmtilegar bækur. Yndisleg, sönn, viðburðarík saga.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE