TAK og páskaeggið
Tak og Páskaeggið eftir Hjalta Bjarnason.
Tak og Páskaeggið. Freyjukettir. Norræn menning 2. útgáfa 2010. ISBN númer.
Desember 1983 í blöðunum: Hjalti, yngsti rithöfundurinn. Útgefnar þá: Tak og draugurinn og Tak og innbrotageimveran.
Innbrota var í Stundinni 9. febrúar 1986. Páskaeggið 15. apríl 1979.
Hjalti samdi Tak-sögurnar og teiknaði myndirnar á árunum 1975 til 1979, þá fimm til tíu ára.
Á Klukkutorgi hefur Tak sett upp stórt páskaegg. Það er að koma vorhátíð.
Tak stendur þarna uppi á stóra egginu eins og marsípanungi!
Tak: -Nú mega allir fá eins mikið og þeir vilja!
Allar geimverurnar stökkva á eggið -- en það er úr gúmmíi, svo þær skjótast aftur til baka en Tak skýst upp í loftið og hlær. Tak var að sprella og gabba pínulítið.
Svo gerir Tak málmpáskaegg með knallettum utan á.
Nú fá sér allir hamar og berja á páskaeggin.
Það er siður hjá geimverunum að brjóta þau með hamri.
Þegar þær slá á eggin koma bara hvellir. Þetta gekk ekkert með hamrinum. Hamarinn meira að segja bognaði. Ein geimveran fær sér þá meitil. En meitillinn skreppur út af egginu...
...og fer beint á kaf í borðið.
Tak: -Nú er ég með fleiri skrípapáskaegg.
Svo útbýtir hann páskaeggjum sem eru með brjóstsykri utan um,
en svo bara sápa innan í.
-Uhh
Tak útbýr líka páskaegg sem líta út eins og súkkulaðiegg.
Geimverurnar brjóta þau, ofsalega ánægðar...
...en upp úr koma gormakarlar.
Tak er nú orðinn leiður á þessu sprelli og býr til falleg og góð páskaegg.
Vonda geimveran stelur góðu páskaeggjunum frá Tak -- til að hrekkja hann -- og lætur klístruð fýlubombuegg í staðinn. En Sprengi ætlar líka að stela Taks eggjum og lendir í öllum klístureggjunum með puttana. Geimi verður var við lyktina af þjófunum og eltir vondu með þýfið.
Geimi fann öll góðu páskaeggin og kom með þau til Taks.
Geimi: -Vúff, Tak. Hérna eru öll vúffu páskaeggin þín.
En geimverurnar treysta nú ekki Taki þegar hann gefur þeim alvöru páskaegg.
Geimverurnar segja: -Þú ert bara að gabba okkur. Þetta er gúmmí...eða eitthvert skrípa... eða fýlubombur í þeim.
Tak bjó til risastórt súkkulaðipáskaegg. Engin geimvera þorir að smakka á því.
Geimverurnar segja: -Það gæti verið sápubragð af því.
Svo Tak hámar það í sig sjálfur.
Þegar hann er hálfnaður, fær hann alveg ferlega magakveisu.
Geimlæknirinn kom:
-Hu? Hvernig fékkstu þessa magakveisu hu?
Tak: -Ég fékk mér hálft páskaegg.
Læknir: -Maður fær nú varla magaveiki af hálfu páskaeggi, hu.
Læknirinn borðaði svo mikið, að hann fékk líka ferlega í magann og þurfti að liggja í rúminu í tvær vikur.
Hann gefur því geimlæknisráð: -Gætið ykkar, geimverukrakkar, að háma ekki í ykkur of mikið af páskaeggjum.
Nú tilkynnir Tak:
-Ester vorgyðja er komin í heimsókn og ætlar að kenna öllum geimverukrökkunum vorleiki og vordansa.
Nú höldum við glæsilega vorhátíð! Allir með!
Svo hugsar Tak, en segir ekki upphátt: -Það er betra en að borða yfir sig af súkkulaði.
Þrjátíu TAK-sögur. Barn semur handa börnum.