×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Geimveran TAK, Glámur auli – Text to read

Geimveran TAK, Glámur auli

Beginner 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

Glámur auli

Glámur auli. Auli. Draugasaga frá Kuklbæ. Eftir Bjarna Þór Einarsson.

Glámur auli. Kallaður auli. Glámur auli kátur á upphituðu skautunum. Á myndinni stendur: Svo fer hann út á svellið til hrekkjusvínadrauganna, en…

Bjarni Þór Einarsson, síðar tölvuverkfræðingur.

Glámur. Draugasaga eftir Bjarna Þór Einarsson fimm ára. Freyjukettir. Norræn menning, önnur útgáfa 2010, ISBN númer.

Tak og Geimi fara í Kuklbæ að heimsækja Glám aula. Glámur er orðinn geimsfrægur. Því sagan um hann var í Æskunni, barnablaðinu, og öll börn lásu hana.

Allir draugarnir í Kuklbæ eru ósýnilegir núna. Nema þessi, sem tekur vel á móti þeim og býður þeim inn.

-Hvers vegna er húsið ykkar svona skakkt? spyr Tak.

-Það stendur í brekku. Við ætlum að hafa grillveislu í nótt. Komið þið ekki?

-Jú, auðvitað, takk, segja Tak og Geymir.

-Hvar eru allir?

-Ósýnilegir í nótt. Huliðshjálma höfum.

Hér í Kuklbæ er samt ýmislegt að sjá: furðudýr sem segist heita U, eða Uuuuuuu, draugafíll, sem er að læra að gera sig ósýnilegan, -- en tekst nú ekki alveg ennþá, talandi ljósastaur. (Geimi skilur nú ekki alveg til hvers), byggingakrani, jólaköttur, þriggja valva þriggja ventla tæki.

Hölli risi. Jólapakki. Þetta venjulega bílastæðavesen.

Á skiltinu stendur: Varúð, þú verður dregin brott.

Hús á fótum -- sem hlær að óförum annarra. Skautadraugur, sem rann á rassinn (fór svolítið í klessu, en hló)

Grilldraugurinn.

Grilldraugurinn kveikir á grillinu. Honum þykir loga illa í kolunum, fer á bensínstöðina að kaupa betri kol og meiri uppkveikivökva. Bensínstöðin var lokuð og þegar hann kemur til baka, eru öll kolin brunnin til ösku og hundarnir búnir að éta pulsurnar. Grillveislunni aflýst. Hann vill ekki sjá að hafa myndir af þessu í sögunni. Þvertekur fyrir slíkt.

-En þetta á að vera myndasaga, kæri Grilli?

-Af og frá. Ég geri mig ósýnilegan. Engar myndir verða af hrakförum mínum.

Glámur auli býðst nú til að bjarga næturskemmtuninni með því að sýna öllum hvernig hann varð geimsfrægur. Nú glaðnar yfir þeim í Kuklbæ, draugunum, Taki og Geima.

Hér kemur sagan.

-Svona byrjaði þetta þegar Glámur auli fæddist, segir Auli. Grúppi pabbi hans sagði: „Hann skal verða ógurlegasti draugurinn hér í Kuklbæ!“

Og Gribba mamma hans sagði: „Hann skal hræða alla!“

Þau létu hann heita Glám. En Glámur er auli. Allir kalla hann Aula. Hann er myrkfælinn.

Hann er kulvís. Algjör auli. Hann þorir ekki að hræða fólk.

Allir krakkadraugarnir í Kuklbæ eru á skautum. Þeir hrekkja hver annan og króa með treflinum sínum og bregða hver öðrum á svellinu. En Auli situr á bakkanum og er kalt á tánum.

Hann fer að búa til upphitaða skauta. Hann ætlar að nota kol og kveikja upp í skautunum en þá kviknar í skónum svo hann notar rafhlöður.

Svo fer hann út á svellið til hrekkjusvínadrauganna en gleymir að slökkva á hitaranum og skautarnir hitna of mikið og bræða rákir í ísinn. Hinir draugarnir verða að hætta að hrekkja og stríða og verða öskureiðir og klaga. Þeir eru klöguskjóður.

Gribba og Grúbbi eru reið. Misheppnað draugabarn sem heitir Glámur en er Auli.

Auli fer öfugum megin fram úr þegar mamma hans vekur hann. Hún vekur hann á kvöldin og draugarnir fara alltaf að hátta á morgnana.

Af því að bekkurinn hans er við útvegginn, dettur hann út í snjóinn. Hann fer í gegnum vegginn á húsinu því hann er draugur.

Gribba fer að hlæja og Grúbbi líka. Gráppi segir: „Þú verður að hræða einhvern í nótt, aulinn þinn!“ Og Gribba segir: „Lítil stelpa er ein heima sofandi. Pabbi hennar og mamma fóru í bíó og skildu hana eina eftir. Farðu og hræddu hana. Enginn draugur vill tala við þig ef þú hræðir engan.“

Auli er myrkfælinn. Litla telpan er alein heima. Hún sefur í rúminu sínu. „Bööööö!“ segir Auli, en hún vaknar ekki.

„BÖÖÖÖÖÖÖ! !,“ segir Auli Og litla telpan vaknar.

Hún fer að hlæja. og segir: „Þú ert skemmtilegur. Hvað heitirðu?“

„Ég er kallaður Auli og rúmið mitt er kallað Glámbekkur og hinir draugarnir kalla mig Aula á Glámbekk -en… ég heiti Glámur og á heima í Kuklabæ. Ég er draugur og á að hræða þig. Annars vill mamma ekki eiga mig.“

„Viltu leika við mig?“ spyr litla telpan. „Ég er ein heima.“

„Ég er myrkfælinn,“ segir Auli.

„Ég skal gefa þér vasaljósið mitt,“ segir litla telpan.

Pabbi og mamma telpunnar eru búin í bíóinu og fara heim.

Þau sjá að það er draugur í íbúðinni hjá litlu telpunni og verða ofsalega hrædd og hlaupa inn.

Auli verður svo hræddur að hann hoppar upp í loftið á svefnherberginu. (Þú verður að snúa myndinni á hvolf til að sjá hvað Auli er hræddur.)

Pabbi og mamma telpunnar halda að þetta sé voða vondur draugur og eru ofsahrædd.

(-Ég lít út fyrir að vera svona ógurlegur vegna þess að ég er á hvolfi! bætir Glámur inn í til skýringar. -Pabbinn og mamman sjá ekki aulasvipinn á mér þar sem ég stend þarna í loftinu, ekki á gólfinu, skjálfandi og skíthræddur!)

Gribba og Grúbbi eru montin af Aula af því hann gat hrætt fólkið.

Allir klappa fyrir Aula og frægðarsögunni hans.

(Sumar myndirnar svolítið skakkar að vísu og það var nú aulagangur -- en Auli gerði sitt besta, bjargaði þessari mislukkuðu huliðshjálmanæturskemmtun og við klöppum fyrir því!)

-Bless, bless og takk fyrir okkur!

-Takk fyrir komuna. Endilega komið aftur í heimsókn í Kuklbæ!

Glámur auli öðlaðist geimsfrægð á einni nóttu. Hann segir okkur frægðarsögu sína þegar Tak og Geimi koma í heimsókn.

Bækurnar fást á Amazon. Þið getið bara farið inn á amazon.co.uk og slegið inn Hjalti Bjarnason eða Freyjukettir.

Bækurnar eru einnig til á bókasöfnum. Og svo er hérna upptalning:

Tak og nornin,

Tak og borðtuskan,

Vinur fílsins,

Tak og freki,

Tak og náttúruvæni einnotapokinn,

Tak og diskurinn,

Tak og lyftingageimveran vera mikla,

Tak og skemmtitækin,

Tak og slökkvibíllinn,

Tak og fiskarnir,

Tak og bíllinn,

Tak og brúin,

Tak og páskaeggið,

Tak og Lalli Marsbúi,

Tak og landbúnaðurinn,

Tak og lyktarsjónvarpið,

Tak og jarðeplaupptökuvélin,

Tak og fjölleikahúsið,

Tak og martröðin,

Tak og flugeldarnir,

Tak og tilraunalímið,

Tak og græna ræktin,

Tak og allraveðrapeysan,

Tak og erfiði maturinn,

Tak og flugvélin,

Takk og fjarska gaman,

Tak og auðtrúa,

Tak og innbrotageimveran,

Tak og draugurinn

og Glámur auli eftir Bjarna Þór Einarsson.

Svo barnabækurnar eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur:

Apakríli, algjör dúlla.

Bína brúða.

Búi skreytir jólatré.

Hannesar saga Grásteins, tuttugu bækur.

Hnallur og spói.

Hrekkjusvín og ljósastaurar.

Hrif.

Hvar voru hrossin í hríðinni?

Jónki fór í réttirnar.

Mummi.

Palli og englabjallan.

Sigga og hafragrauturinn.

Tíkin Tóa og grey litli krúsi.

Tóta og þau.

Hagbarður og hvutti.

Draumahúsið.

Hver er hann þessi Jakob?

Flugan.

Svo eru langar barna- og unglingasögur:

Halla

Japl, jamli og fuður

(Sjónvarpssápa, fyndin alíslensk vandamálasápa í sjónvarpsþætti af vinsælustu gerð; sitcom, það er „situation comedy“, þetta frábæra handrit komst á stuttan lista úr hundruðum þúsunda innsendra handrita hjá Media, evrópsk menning)

Svo eru smásögur:

Saga Svaðilfara.

IN MEMORIAM (verðlaunasaga)

Sál bróður, steinbítsbróður (verðlaunasaga)

Tröllabarn (verðlaunasaga)

Hreggnótt

Í mjúku myrkri búa draumarnir

Dívan skáldsins

Vaknaðu, Lóa, vaknaðu!

Ég, hið silfraða sjal

Þetta er mitt hús

Melana, drottning frumskógarins

Au pair

Dagdraumar og sorgarband

Leyniþræðir

Huginn Jöruson, hornungur (sakamál)

1000 stjörnur - Bónda minn hálfan, Hljóðahver ljóðakver

Strætó í hringi

Drottinn blessi heimilið

-Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma?

-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti (verðlaunaleikrit)

Og svo fræðsluefni:

Óðsmál (1996)

Óðsmál in fornu (2009)

Óðsmál in fáu (streymi árið 2000)

Valhallar Óðsmál in gullnu (2010)

Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum)

Rakni og Þögn – KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit)

Og svo eru fleiri bækur

Óðsmál. Um dýptina í okkar forna sið

Óðsmál Norse Edda spiritual highlights

Að leggja Bifröst, lag fyrir lag. Á ensku: How to layer bridge Bifröst, layer by layer. As if drizzling invisible star-dust.

Óðsmál: The Unseen Reality.

Óðsmál 2012: Ævi hver til uppljómunar. Litla kjaftfora völva talar mikið og segir okkur margt.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE