×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Villtir Víkingar og vandaræðagripir, Villtir víkingar og va… – Text to read

Villtir Víkingar og vandaræðagripir, Villtir víkingar og vandræðagripir III

Intermediate 2 Icelandic lesson to practice reading

Start learning this lesson now

Villtir víkingar og vandræðagripir III

Sigurlaugur: Komið þið sæl og verið velkomin í þriðja þátt af Villtum víkingum.

Jón Páll: Og Vandræðagripir.

Sigurlaugur: -Vandræðagripir. Hér er ég, Silli og...

Jón Páll: -Jón Páll.

Sigurlaugur: Jón Páll, velkominn Jón Páll.

Jón Páll: Já, velkominn, Sigurlaugur.

Sigurlaugur: -Takk fyrir.

Jón Páll: Já.

Sigurlaugur: -Hvað segirðu? Við fengum beiðni af Veraldarvefnum.

Jón Páll: Já, við gerðum það.

Sigurlaugur: Við erum mjög bóngóðir menn.

Jón Páll: -Við erum mjög bóngóðir menn. Einn áhorfanda var að velta fyrir sér hvort við gætum talað um verkfæri.

Jón Páll: -Mhm. Þá nefndi hann sérstaklega hefla, bora og sagir.

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Það sem við höfum...

Sigurlaugur: -Þetta var hann Óskar.

Jón Páll: Þetta var hann Óskar og sko við erum hérna með eftirlíkingar af ýmsum verkfærum. Öll þessi verkfæri hérna eða nánast öll eru smíðuð af einum og sama manninum. Hann hét Gunnar Bjarnason og var hvað á ég að segja, þúsundþjalasmiður.

Sigurlaugur: -Já. Svona sennilega bara mesti völundur okkar Íslendinga á seinni árum?

Jón Páll: Já, hann sem sagt smíðaði ekki bara úr verkfærum heldur smíðaði hann líka verkfæri.

Sigurlaugur: Við sjáum reyndar eitt af hans listasmíðum hérna.

Jón Páll: Já, sem er verkstæðið.

Sigurlaugur: Verkstæðið hérna fyrir aftan okkur.

Jón Páll: En sko, þau verkfæri sem við höfum hérna, þau byggja öll á sem sagt fundi sem var árið 1936 á suðurhluta Gotlands sem heitir Mästermyr. Og þar fannst...

Sigurlaugur: -Miklamýri.

Jón Páll: Miklamýri. Og þar fannst hvorki meira né minna en sem sagt verkfærakista frá því um árið 1000 og kistan, eins og þið sjáið á þessari mynd hérna, var mjög heilleg. Og sem sagt verkfærin í henni líka og þessi sem sagt, þetta hefur, þessi kista og það sem í henni var hafa verið svona dálítið leiðarljós fyrir menn síðan um sem sagt hvernig verkfæri menn notuðu.

Sigurlaugur: Svo merkilegt af því að smiðurinn sem að tapaði kistunni, ekki nema henni hafi verið fórnað þarna sérstaklega, hann var ekki bara trésmiður, hann hefur sennilega líka verið að vinna með málma. Hann hefur verið svona þúsundþjalasmiður.

Jón Páll: Hann hefur verið þúsundþjalasmiður.

Sigurlaugur: -Pípari. Já.

Jón Páll: Þess vegna.

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Og. Sko, sumt þessara verkfæra hafa nánast ekkert breyst. Þau, við getum fundið sömu verkfærin nánast í dag, að vísu úr öðrum efnum. Hér er til dæmis verkfæri sem heitir skaröxi. Og skaraxir í dag eru nánast alveg eins nema ef til vill úr betri málmi en voru þá. Svona verkfæri er reyndar frægt úr einni Íslendingasögunni, er það ekki?

Sigurlaugur: Jú.

Jón Páll: Úr Króka-Refs sögu.

Sigurlaugur: -Akkúrat.

Jón Páll: Akkúrat, þar sem þetta er notað sem vopn reyndar, svona drápsvopn. Og það náttúrulega ber að geta þess að öll svona verkfæri, sem sagt þau hafa bit, þannig að þau eru á vissan hátt, hvað segi ég, þau eru á vissan hátt hættuleg en náttúrulega ekki í höndunum á vönum mönnum.

Sigurlaugur: Nei, nei. Þess vegna eru þau öll hérna megin.

Jón Páll: Allt í lagi, sko. Ég get byrjað á því að nefna, fyrst að hann Óskar nefndi sérstaklega bora.

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Og hér er ég með sko einn. Hann er ósamsettur, það er að segja, það var hægt að setja hann saman sem er náttúrulega mjög gott þegar maður er að ferðast um.

Sigurlaugur: Fannst þá þannig í...

Jón Páll: -Hann fannst þannig í... í Mästermyr

Sigurlaugur: Mästermyr.

Jón Páll: -Í Mästermyr. Og sem sagt þetta hérna er sem sagt bitinn eða borinn sem fer hérna í og hérna, þetta kallar maður...

Sigurlaugur: -Nafar.

Jón Páll: Þetta heitir nafar, já. Og

Sigurlaugur: svo hefur maður séð sko í hérna á Bayeux-reflinum.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: þá er svona eins og menn séu að setja þungann sko á þverspýtuna.

Jón Páll: Já og það er sem sagt, ætlunin er sem sagt að ef menn sem sagt vilja virkilega taka á og bora hratt þá er sem sagt þunginn, bara líkamsþungi settur hérna á endann.

Sigurlaugur: Kannski fáum við þá mynd bara hérna yfir.

Jón Páll: En ég ætla ekki svo sem að fara að leggjast alveg á hann en ég get gefið smá sýnikennslu bara svona að sem sagt það, þetta, þessi hérna skóflulaga hluti, hann er með biti, báðum megin reyndar. Þannig að það skiptir í raun og veru ekki máli hvernig maður snýr. En ef maður byrjar og snýr þessu svona niður og svo framarlega sem hann er vel beittur.

Sigurlaugur: Þannig að ef við værum til dæmis að gera bát eða skip eða eitthvað slíkt, þá myndum við gera göt fyrir nöglum.

Jón Páll: Til dæmis.

Sigurlaugur: Sennilega með þessum hætti.

Jón Páll: Til dæmis. Og hérna er ég kominn sentimetra niður, þetta tók svona 15 sekúndur, þannig að þetta er mjög fljótgert, þetta náttúrulega fer svolítið eftir viðnum. Önnur minni tegund af bor er hérna, þetta er svona handbor og hann virkar, af því að bitið er báðum megin þá virkar hann á svipaðan hátt en það er hægt að gera svona fram og til baka með hann..... og aftur þá er maður fljótur að fara niður og í gegn.

Sigurlaugur: Fljótur,

Jón Páll: En svona var líka, sem sagt það er ekki bara að menn boruðu ekki bara í tré heldur var líka borað í stein eins og þennan snældusnúð hérna. Þetta er gert úr rauðasteini og ég er með hérna lítinn rauðastein sem ég er búinn að bora í með þessum bor og þetta náttúrulega er ekki jafn fljótlegt, fljótgert og hérna að bora í tré en þetta gengur þó.

Sigurlaugur: Það má nú reyndar lofa auðvitað að spara sér vinnuna að hafa bara þræla í þessu?

Jón Páll: Það má ekkert nú gera það eða nota sem sagt einhvers konar verkfæri þar sem að svona meiri tækni er beitt. Og það eru uppi getgátur og mjög ekkert ólíklegt að þeir hafi haft slík verkfæri. Hér sjáum við tvenns konar bora, annað heitir bogabor og hitt er pumpubor og þarna er sem sagt er snúran notuð til þess að til þess að hérna knýja borinn áfram. En mikið af þessu, Sigurður, mikið af þessum vangaveltum byggir náttúrulega á því að nútímamönnum finnst svona aðferð vera alveg óskaplega seinleg sem hún er. Þegar

Sigurlaugur: þeir eru með Bosch sko.

Jón Páll: -Já, já, þeir eru með Bosch.

Jón Páll: Og hérna, og þeim finnst náttúrulega vera hrein fásinna að vera kannski að eyða um klukkutíma í að vera að gera eitt svona gat. En fólk fyrir þúsund árum, það hugsaði nú aðeins öðruvísi, og varði tímanum sínum öðruvísi líka en við. Þetta, svona verk var kannski hægt að vinna fyrir framan langeldinn að kvöldi.

Sigurlaugur: Já,

Jón Páll: og...

Sigurlaugur: það er ekkert, þú veist, það er enginn Gísli Marteinn eða eitthvað að trufla eða hvort sem er.

Jón Páll: Nei, nei.

Sigurlaugur: -Þannig þú hefur alveg tíma.

Jón Páll: Þú hefur alveg tíma, þú getur spjallað eða hlustað á sögur eða sagt sögur á meðan.

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Þannig að tíminn þeirra, hann...

Sigurlaugur: -Eru gera fleiri en einn hlut í einu, meinarðu?

Jón Páll: Ég er að meina það og sem sagt að tíminn þeirra, hann nýttist allt öðruvísi heldur en tíminn okkar í dag. Þannig að við skulum ekki halda að svona verknaður hafi verið bara eitthvað, þú veist, hálfgerð vitleysa. Þetta er bara spurning um þolinmæði. -Já. Aðallega.

Sigurlaugur: -Ókei. Tímastjórnun.

Jón Páll: -Tímastjórnun. Já. -Hér er ég með annað verkfæri. Þetta er, í dag köllum við svona verkfæri tálguhefil. Og þetta er notað sem sagt til þess að hefla eða tálga og við getum...

Sigurlaugur: Þetta er það sem menn hafa sennilega kallað loka?

Jón Páll: Já. Og þetta er sem sagt bara til þess að slétta og tálga. Hér er önnur, annar sams konar bara minni. Og eins og þið sjáið þetta....

Sigurlaugur: Flugubítur.

Jón Páll: Já já, flugubítur. Bítur allt út um allt.

Sigurlaugur: Við viljum taka fram að þetta eru náttúrulega allt nútímaeftirlíkingar, þannig að við erum ekki að brjóta neitt hérna.

Jón Páll: Nei. En bíddu nú við. Hér er skurðarjárn sem er sérstaklega gert til þess að rista þá svona eins og línur.

Jón Páll: Og hér er annað skurðjárn sem er, ég get kallað þetta svona skrautskurðjárn. Það er búið að setja í þetta ákveðið svona mynstur og þegar að þetta er dregið eftir spýtunni þá yfirfærist það sem sagt mynstur þá yfir á, yfir á...

Sigurlaugur: Þetta er svo sem, sjáum við svo sem enn þann dag í húsasmíði að... -Jájá. ...að menn eru að strika viðinn.

Jón Páll: Akkúrat.

Sigurlaugur: Svona til skrauts.

Jón Páll: Já. Sagir hins vegar fundust líka í Mästermyr, verkfærakistunni. Þær voru allar mjög litlar.

Sigurlaugur: Já.

Jón Páll: Sú stærsta var á stærð við svona búrhníf, sem er um það bil svona stórt. Og það er ekki talið að menn á þessum tíma hafi notað mjög stórar sagir.

Sigurlaugur: Nei. Og þær gætu kannski verið notaðar í öðrum tilgangi heldur en að saga við til dæmis.

Jón Páll: Til þess að sem sagt taka við í sundur, þá er mun meira sem sagt að þeir hafi notað þá axir eða eins og þessi hérna. Já, passaðu þig að snúa þessu svona, ah. Þessi hérna og meira að segja þegar kom að stórviði, að taka í sundur heila trjáboli, þá voru þá, þær trjábolir voru ekki sagaðir niður.

Jón Páll: -Nei. Heldur voru þeir, þeir voru klofnir.

Sigurlaugur: -Akkúrat.

Jón Páll: Þá er það gert þannig að hérna... sjá. Sýnt þetta hérna.

Jón Páll: Það er svona stórviður.

Sigurlaugur: En hann var þá yfirleitt alltaf klofinn sko.

Jón Páll: Á þennan veg, já.

Sigurlaugur: Langsum?

Jón Páll: -Já. Og þá er sem sagt er öxin sem sagt sett hérna og síðan er lamið ofan í. Og oft ef það þurfti að gera þetta á mörgum stöðum, þá var sem sagt, var fleigum stungið á vissum stöðum niður eftir bolnum. Og þeir síðan lamdir niður þangað til að...

Sigurlaugur: Það var jafnt og þétt?

Jón Páll: Það var Jafnt og þétt.

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Þangað til að bolurinn klofnaði og þá sem sagt voru þau borð sem komu úr slíku, þau voru sem sagt eftir í raun og veru vaxtarlínum viðsins og voru þess vegna talsvert sveigjanlegri heldur en til dæmis einhver svona tilsöguð spýta eins og þarna.

Sigurlaugur: Það er náttúrulega lykillinn í bátum og skipum þessa tíma, er þessi sveigjanleiki í raun?

Jón Páll: Já.

Sigurlaugur: -Sem þú færð einmitt með þessu?

Jón Páll: Akkúrat sko.

Sigurlaugur: Líka bara sveigja borðin eða annað.

Jón Páll: Fleiri verkfæri. Þetta hérna í dag köllum við þetta síla, en þetta eru væntanlega kallaðir

Sigurlaugur: Alir.

Jón Páll: -Alir, já. Þessi er sívalur en þessi er kantaður og sá kantaði má einnig nota til að bora svona minni göt af því sem sagt kantarnir þeir þá rífa sig upp þegar maður fer svona í gegnum þetta. Þetta er allt á hreyfingu hérna hjá okkur.

Sigurlaugur: Þar fór það.

Jón Páll: Sporjárnin hérna.

Sigurlaugur: - Kunnuglegt

Jón Páll: Kunnuglegt, eins og ég segi, mörgum...

Sigurlaugur: Og mikið af þessum verkfærum, tangir, hamrar, meitlar.

Jón Páll: Þetta hefur ekki breyst?

Sigurlaugur: -Ekkert breyst. Ekki svona í grunnatriðum.

Jón Páll: Annað sem fannst líka í þessari verkfærakistu sem við erum ekki með hér, það eru hlutir eins og raspar, það eru þjalir, það fannst hérna kúluhamar og ýmis...

Sigurlaugur: Þjalir eða fjalir?

Jón Páll: -Þjalir.

Sigurlaugur: Ekki þjalir?

Jón Páll: -Nei, þjalir.

Sigurlaugur: Já,

Jón Páll: þjalir, fyrirgefðu.

Sigurlaugur: -Til að... Já,

Jón Páll: og kúluhumar og ýmsar tegundir af hömrum og tangir og ýmsir hlutir líka til málmsmíði.

Sigurlaugur: Já og svo náttúrulega hefur bara kistan sjálf orðið mjög góð heimild um hvernig kistur voru samansettar. Þannig að ef þið farið á Víkingaaldarsýningar þá sjáum við gjarnan að menn eru alltaf með sömu kistuna.

Jón Páll: Já.

Sigurlaugur: Af því hún hefur orðið svolítið svona táknmynd kistna.

Jón Páll: Sem sagt...

Sigurlaugur: á Víkingaöld.

Jón Páll: Já, frá þessum fundi þarna á Gotlandi. Það er eitt með flest þessi verkfæri Sigurlaugur.

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Í fyrsta lagi, þau eru úr járni.

Sigurlaugur: -Jú.

Jón Páll: Þetta er ekki stál.

Sigurlaugur: -Ja, það fer eftir því hvernig við skilgreinum það kannski.

Jón Páll: já, en þetta er sem sagt...

Sigurlaugur: Í grunninn er þetta járn.

Jón Páll: -Í grunninn er þetta járn.

Sigurlaugur: En sennilega hafa menn þurft að hamra þetta og fá kolefni í þetta til þess að herða þetta þannig að þetta yrði...

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Það sem við myndum svona kalla mjúkt stál í dag kannski.

Jón Páll: -Mjúkt stál, já. Hér á Íslandi náttúrulega, ekki fluttu þeir allt þetta járn inn?

Sigurlaugur: Ekki á þessum tíma.

Jón Páll: -Nei.

Sigurlaugur: Nei.

Jón Páll: -Hvað gerðu þeir þá?

Sigurlaugur: Þeir hafa sennilega þurft að vinna þetta bara sjálfir úr náttúrunni. Og þá vill svo heppilega til að það má víða finna rauðalæki og rauðamýrar og slíkt, þar sem að járnefni safnast saman í jarðveginum og svo hafa menn haft aðferð sem nefndist rauðablástur til að sem sagt skilja að þá járnið frá jarðveginum. Og það eru svona ýmsar tilgátur um hvernig þetta hefur farið fram og það er, menn eru búnir að vera svolítið að leika sér með svona tilgátur.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Og sérstaklega hérna til dæmis Margrét Hallmundsdóttir, og fleiri voru nú bara, held ég síðast í sumar, að gerða tilraunir með tilgátu rauðaofn, þar sem að það er sem sagt byrjað á því að grafa bara gryfju og síðan byggðu menn svona mannvirkið ofan á, getum við sagt, sem var úr torfi.

Jón Páll: -Jú.

Sigurlaugur: Bara einfaldlega, af því að menn hafa verið að finna torfleifar í kring, því að gallinn við þetta er sko þegar að menn eru búnir að nota þetta þá rjúfa þeir þetta og þannig að það er svo lítið eftir af mannvirkjunum til að átta sig kannski á því sko hvernig það var uppbyggt.

Jón Páll: Þannig að fræðsluofninn er einnota?

Sigurlaugur: Já, eða sko hann er kannski, það er hægt að nota kannski svo sem aftur, en alltaf þegar þú skilur við hann.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Það væri þá helst ef að sko, ef að ef að Björn rauði hefði verið að blása rauða og fengið hjartaáfall og skilið hann eftir, þú veist, órofinn, þá myndum við geta áttað okkur kannski betur á því. En menn eru að sjá mikið af svona torfsneplum og leifum og eitthvað sko. Þannig að menn eru að ímynda sér að þetta hlýtur að hafa verið byggt eitthvað upp.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Og síðan sko myndast svona, eh...

Jón Páll: hola.

Sigurlaugur: Já.

Jón Páll: Í miðjunni.

Sigurlaugur: Já, akkúrat. Og ofan í jörðina semsagt. Já og einhvern veginn hafa menn þurft að fóðra hana, því annars hefði torfið náttúrulega bara fúað upp. Menn eru búnir að vera að leika sér með einhvern „cleaning“, einhverja blöndu af talði og leir og svona einhverju, menn eru að reyna að finna einhverja formúlu. Af því að það er eitt af því sem við finnum auðvitað lítil ummerki um. Þannig að einhvern veginn hafa menn þurft að gera hana eldþétta.

Jón Páll: Þétta.

Sigurlaugur: Þétta, já, svo hafa menn einmitt kveikt eld til að herða leirinn og síðan er þetta bara spurning um að taka sem sagt rauða, setja til skiptis við viðarkol og svo er sem sagt neðst niðri, botninn á þessu mannvirki, þar er höfð blístra eða sem sagt svona hólkur og þar hafa menn sem sagt þurft að blása. Þetta hafa verið þessir svona tvískiptu belgir sem hafa verið í notkun. Við kannski sjáum ef við sjáum þessa mynd hérna frá Noregi af hérna stafkirkjunni frægu í hérna Setesdal. Þá sjáum við hérna þar sem að Reginn er að smíða sverðið fyrir Sigurð Fáfnisbana og Sigurður er sem sagt að blása.

Og það að láta einhvern annan blása tíðkaðist mjög lengi, það er að segja þessar smiðjur sem við sjáum fyrir okkur á byggðasöfnum í dag, þar sem að þú stendur og togar. Það er samt frekar nýlegt. Margir sem að muna kannski eftir frænkum og frændum sem að höfðu það hlutverk að blása.

Jón Páll: En blásturinn þurfti að vera mikill og stöðugur?

Sigurlaugur: Og já, já.

Jón Páll: Vegna þess að hiti...

Sigurlaugur: af því að þú þarft að fara upp í tólf-, fjórán hundruð gráður einhvers staðar þarna, já. Þannig að þetta þarf að hitta akkúrat á rétt hitastig og þá sem sagt skilst þetta að, það sem við köllum þá járn frá...

Hvað köllum við þetta nú aftur? Hérna...

Jón Páll: -Frá mýrarauðanum?

Sigurlaugur: Já eða sem sagt...

Jón Páll: -Úr þessum jarðvegi.

Sigurlaugur: Já, við köllum slag á ensku og það

Jón Páll: heitir gjall.

Sigurlaugur: -Gjall, gjall, gjall, gjall, þarna kom það, já. Alveg stolið úr mér. Sem er þá í raun öll hin frumefnin eða efnin í jarðveginum sem að við höfum engin gagn af og svo rjúfum við þetta og fjarlægjum járnkökuna sem er kannski ekki mikið stærri en, ég veit ekki, svona hnefastór klumpur sem fæst úr einhverju x-magni. Þannig að þetta hefur bæði náttúrulega mjög frekt á skóga. Þetta hefur örugglega tekið svolítinn tíma og menn hafa eflaust, menn hafa svo sem fundið bara staði þar sem menn hafa verið með örugglega bara marga ofna í einu.

Jón Páll: Já.

Sigurlaugur: Eins og hérna bara rétt hjá.

Jón Páll: Hinum megin við götuna?

Sigurlaugur: -Já.

Jón Páll: Já,

Sigurlaugur: þetta hefur verið svona svolítil verksmiðjuframleiðsla.

Jón Páll: En þetta er samt alveg lífsnauðsynlegur þáttur vegna þess að þeir geta ekki lifað án járns.

Sigurlaugur: Nei, við erum á járnöld.

Jón Páll: Við erum á járnöld og það er sem sagt nánast öll þeirra verkfæri eru úr járni, þannig að þeir verða og það er ekki hægt að smíða skip eða hús án þess að hafa járn.

Sigurlaugur: Nei.

Jón Páll: Þannig að þetta skiptir alveg gríðarlega miklu máli. Já, í sambandi við gjallið.

Sigurlaugur: Já.

Jón Páll: Stundum eru fornleifafræðingar ekki kannski að finna neitt nema gjall, því þá er náttúrulega búið að taka allt hitt. En það er samt nógu sterk vísbending um að þarna hafi starfsemi farið fram.

Sigurlaugur: Já, sko þegar þú tekur hérna, klumpinn út úr ofninum, þá er hann ennþá óhreinn.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Þannig að þá þarftu að hafa stóran stein einhvers staðar tiltækan og svo eru menn að sko berja þetta alveg eins og þeir hérna eiga lífið að leysa, til þess að ná sko óhreinindunum, soranum úr þessu, meira gjalli sem sagt og þetta er að finnast oft svona í vinnslusvæðum þá í kring líka. Og það er nú kannski frægasti steinninn, ef þú getur kannski fengið mynd af honum hérna, sem að Skallagrímur Kveldúlfsson kafaði eftir. Sem sagt honum vantaði góðan, sléttan stein til að berja eða sem sagt lýja. Það er stundum talað um að einhver sé „lúbarinn“, það er sem sagt dregið af því að menn þurftu að lýja járnið og hann fann þennan stein sem sagt á hafsbotni. og kafaði eftir honum og dró hann upp og hann er sem sagt ennþá þarna á Mýrunum þar sem að hann var með smiðju. Og svo er já, svo er hægt að vera að vinna úr þessu járni og auðvitað til þess að fá gott bit að þá þarftu að hafa svolítið kolefnisríkt járn þannig að það hefur örugglega þurft að vinna það vel og berja svolítið gott kolefni í þetta og þannig færðu náttúrulega bitjárnið.

Jón Páll: En talandi um bitið,

Sigurlaugur: já,

Jón Páll: Það þarf að halda því við, ég meina þetta er bitið að það, þetta hérna, það, eftir því meira sem maður vinnur með þetta því meira gengur á bit og þá þarf að brýna.

Sigurlaugur: Já, það er mjög brýnt að brýna.

Jón Páll: Það er mjög brýnt að brýna.

Sigurlaugur: Nú erum við ekki kannski brýnustu hnífarnir í skúffunni.

Jón Páll: Nei, en við vitum þó að...

Sigurlaugur: Eða skörpustu hnífarnir ætlaði ég að segja.

Jón Páll: Við vitum þó að sem sagt brýni, eins og þeir sem við erum með hérna.

Sigurlaugur: Við höfum hérna nokkrar tegundir.

Jón Páll: Þau eru sem sagt... Er þetta ekki bara með því algengara sem finnst í fornleifauppgröftum?

Sigurlaugur: Jú og eðlilega þá finnast steinar auðvitað vel, þeir varðveitast betur en annað efni auðvitað en eitt af því sem að kannski hér á Íslandi er svo augljóst er að þetta er ekki íslenskt berg, þetta er allt innflutt, þetta er sennilega norskt, þaðan, það eru hérna námur í Noregi sem að menn geta hérna rakið þessa vinnslu aftur, langt aftur í hérna tíð. Og við... Þetta er stundum kallað glimmerskífuberg þegar við sjáum það svona.

Jón Páll: Glansar aðeins á það.

Sigurlaugur: Ég veit ekki hvort það sjáist vel en þetta er svona eins og einhver hafi verið að strá glimmer á þetta. Og þetta berg hefur verið mjög eftirsótt í brýni og þá ertu, erum við að tala um náttúrulega til að brýna bitvopn, verkfæri, sverð, ljái, sigðir, ýmislegt. Svo svona heima við þá hafa konurnar þurft að hafa svona lítið tálgubrýni í bandi. Hafa kannski haft um hálsinn eða í beltinu og þá hefur það nýst til að brýna til dæmis

Jón Páll: skæri.

Sigurlaugur: Skæri.

Jón Páll: Já.

Sigurlaugur: Eða nálar eða annað.

Jón Páll: Eða litla hnífa.

Sigurlaugur: Og svo eins hafa menn örugglega haft þetta líka sko, því að þú hefur verið náttúrulega með hníf á þér.

Jón Páll: Já.

Sigurlaugur: Sem hefur náttúrulega verið mjög gagnlegur bara við að borða og bara ýmislegt.

Jón Páll: Sem sagt og fólk er stöðugt að brýna?

Sigurlaugur: Já.

Jón Páll: Já og það sést meira að segja á þessum hérna.

Sigurlaugur: Þetta er orðið mjög eytt.

Jón Páll: Já, það er búið að brýna ansi mikið af þessu.

Sigurlaugur: Já. Þetta er gamla brýnið.

Jón Páll: -Þetta er gamla brýnið. En þetta er allt innflutt.

Sigurlaugur: -Já. Svo auðvitað hafa menn fundið íslenskt.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Sem að menn, það er að segja brýni sem menn telja, náttúrulega. Kannski helsta einkenni brýna er jú að þau eru nú oft í laginu eins og þessi brýni hér, ferstrend og það eru til heinaberg víða og gamalt heiti er hein. -Mhm. Og ef ég man rétt úr Snorra-Eddu, þú kannski leiðréttir mig, mig minnir að það hafi verið þegar Þór er að berjast við hérna...

Jón Páll: -Mökkurkálfa.

Sigurlaugur: Mökkurkálfinn, að hann kastar...

Jón Páll: -Hein í hausinn á honum.

Sigurlaugur: -Já. Og sem sagt, það splundrast.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Og þaðan koma öll hein okkar á jörðinni. Þetta eru sem sagt brot úr þessu stóra eina heini.

Jón Páll: Hann var rosastór.

Sigurlaugur: -Já. Þannig að...

Jón Páll: En eru þessi íslensku brýni jafngóð og þessi innfluttu?

Sigurlaugur: Greinilega allavega ekki eins eftirsótt en nú verð ég bara að játa að einu brýni sem ég hef notað er úr svona karbórúndum, svona nútímabrýni, þannig að ég hef nú ekki orðið svo frægur að prufa svona gömul brýni. Þannig að ég get ekki alveg sagt til um það. En miðað við hvað þessi hafa verið eftirsótt...

Jón Páll: Og þú, þetta hefur þá greinilega, það hefur einhver eða einhverjir haft drjúgar tekjur af því að bara hreinlega flytja inn brýni til Íslands?

Sigurlaugur: Já, það hefur verið Brynja einhvers staðar.

Jón Páll: -Eða Brynjar?

Sigurlaugur: Eða Brynjar. Brynja og Brynjar og sennilega hafa verið að flytja inn og auðvitað fleiri en bara brýni auðvitað því menn voru auðvitað að flytja inn alls konar. En þetta er svona eitt af þessum gripum sem eru mjög svona dæmigerð(ir) fyrir víkinga og fyrri hluta miðalda. Svo sjáum við þeim fækka. Það er greinilega bara minni viðskipti og þá hafa menn þurft að treysta meira á íslenskt, ehm, og ekki svo sem haft neitt annað kannski val um það svo sem.

Jón Páll: En segðu mér svona bara rétt í lokin, eitt af þeim verkfærum sem við erum ekki með hérna sem var, getum við sagt, eitt mikilvægasta verkfærið og það er ljárinn.

Jón Páll: Hvernig voru ljáir?

Sigurlaugur: Þeir voru nefnilega ólíkir þessum ljáum sem að við þekkjum í dag, ef einhverju höfum við annað borð notast við ljái, það eru kannski einhverjir. En við sjáum kannski þessi eini sem að við höfum svona, já, sko engir ljáir á Íslandi hafa fundist þannig að við getum aldursgreint þá. Það er að segja þeir finnast sem lausafundir, þeir finnast ekki í samhengi við neitt annað. Þannig að við vitum ekki aldur þeirra en svona ef við berum þá saman við þá sem hafa fundist í Noregi, á tímabili þá var algengt að setja ljái í kuml í Noregi.

Við finnum ekkert slíkt á Íslandi og við vitum ekki ástæðuna en það virðist vera, ef við skoðum norska dæmið, að svona um það bil sem Ísland er að byggjast að þá fara menn. .. þá er minna um það að menn séu að setja ljá í grafirnar. Menn hafa kannski hugsað sko, þú ert að fara til Valhallar að skemmta þér. Þú þarft kannski ekkert að hafa ljáinn með þér, þú þarft ekkert að fara að heyja þarna fyrir Óðinn eitthvað í Valhöll endilega.

Þannig að það er einhver ástæða, menn sjá ekki ástæðu til þess að setja þetta lengur og það kannski útskýrir það af hverju við finnum það ekki á Íslandi. En við höfum þennan hérna eina sem að kemur úr hérna, hann kemur úr dalnum hérna, Bárðardalnum, og hann er sem sagt með þetta víkingaaldarlag. Það sem að þú ert með, hann er svona kannski skyldur sigðinni að því leyti að hann er svona hálfmána, hálfmánalegur og mjög gleiður sem þýðir sko, nútímaljárinn er svona sirka 90 gráður og þegar við setjum hann í orfið en þessi hefur verið mjög útstæður og hann hefur sennilega verið í mjög stuttum orfum eins og tíðkuðust lengi í Noregi. Menn hafa sennilega þurft að beita báðum höndum þegar þeir slógu og þetta hefur verið örugglega erfitt fyrir bakið.

Menn hafa þurft að vera svolítið bognir. En þetta er allavega verkþekking sem að. .. Af því við höfum oft þessa hugmynd um að það breytist aldrei neitt á Íslandi. En þarna greinilega þróast þetta eitthvað og frá Víkingaöldinni og eitthvað fram á miðaldir, þá förum við að sjá breytingar á þessum verkfærum.

En eftir sem áður þá þurfti að hvetja ljáinn, línan, og það helst. -Það er helst. Já. En við getum kannski talað betur um það síðar.

Jón Páll: Við getum kannski gert það.

Sigurlaugur: Og eins ef þið hafið einhverjar hugmyndir,

Jón Páll: um að gera. Ef þið sem sagt, ykkur dettur eitthvað í hug sem ykkur langar til þess að heyra um sem tengist þessu tímabili.

Sigurlaugur: Eins og í dag erum við búin að tala um verkfæri.

Jón Páll: -Já.

Sigurlaugur: Sem hann Óskar stakk upp á.

Jón Páll: -Akkúrat. Og eins og ég segi þá bara endilega látið okkur vita. Við erum til í allt. En þá segjum við þetta bara gott í bili.

Sigurlaugur: Já, bara takk fyrir og sjáumst síðar.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE