×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Black Friday Up to 50% off
Sign Up Free
image

Rassfar í steini, 68. Fallið

68. Fallið

Þá var hún hafin Stiklastaðaorrusta hinn 29. júlí árið 1030. Svo sögðu víst margir menn frá að um leið og vopnaviðskiptin hófust hefði dottið á sólmyrkvi og staðið um hríð. Nú hafa síðari tíma rannsóknir að vísu sýnt fram á að þetta sumar varð sólmyrkvi í Noregi, en ekki fyrr en 31. ágúst. Ekki eru menn á einu máli um hvort sólmyrkvinn hafi hugsanlega verið rúmum mánuði fyrr á ferðinni eða orrustan jafnlöngu seinna. Svo eru þeir til sem telja að orrustan og sólmyrkvinn komi hvort öðru alls ekkert við. En hafi sólmyrkvi orðið meðan orrustan fór fram, þá minnir hann óneitanlega á sólmyrkvann sem varð þegar Jesús hékk á krossinum og þeir segja báðir frá, guðspjallamennirnir Matteus og Markús.

Ólafur var í miðfylkingunni, umluktur skjaldborg eins og skáldin hans. Í fylkingunni sem réðst á móti Ólafi konungi var maður sá er Þórir hét og hafði viðurnefnið hundur. Hann hafði nokkru fyrr keypt af galdramönnum norður á Finnmörk hreindýrsskinn sem hann bar yfir sér. Fyrir galdur var skinnið þess háttar að á það bitu engin vopn. Ólafur hjó til Þóris með sverðinu Hneiti en það vann ekki á skinninu heldur gaus bara upp úr því flasa og ryk. Þá kom þar að maður sem hét Þorsteinn knarrarsmiður og hjó Ólaf með öxi ofan við hné á vinstri fæti. Ólafur fleygði þá frá sér sverðinu og hneig upp að steini sem stóð á grundinni. Með þessu fylgdi hann þeim viðtekna sið píslarvotta að verjast ekki eftir að farið er að meiða þá. Þórir hundur rak því næst spjót upp undir fald brynjunnar sem Ólafur bar og upp í kviðinn. Sárið var á svipuðum stað og lensan stakkst í Jesúm Krist forðum á krossinum. Loks hjó Kálfur Árnason, bróðir áðurnefnds Finns sem barðist með Ólafi, til konungsins og utan á hálsinn vinstra megin, en engir menn muna lengur hvort þar af varð sár eða höggið eitt. Þessir þrír menn unnu á Ólafi sem lét lífið þarna við steininn. Þar stendur nú kirkja. Helst til seint mætti Dagur Hringsson til leiks með sína menn en var þá kröftugur og felldi marga óvini, stökkti öðrum á flótta en varð loks að bjarga sjálfum sér á hlaupum undan ofureflinu. Framganga hans fékk samt heiti og er kölluð Dagshríð. Lognaðist þá bardaginn fljótlega út af og sól tók að skína á ný yfir Stiklastaði.

Stiklastaðabardagi er ekki bara einn af lykilviðburðum Noregssögunnar heldur allrar Norðurlandasögunnar. Margt hefur verið um hana ritað og margra spurninga spurt. Hér eru tvær þeirra:

Átti Ólafur möguleika á sigri? Sumir fræðimenn segja já. Hann hafði að vísu fámennara lið – kannski kringum tvö þúsund og fimm hundruð manns. Giskað er á að í bændahernum hafi verið þrjú til fimm þúsund manns. Ólafs lið var líklega skár vopnað og heldur vanara að fara með vopn. Sjálfur var Ólafur reyndur herforingi og hann valdi orrustuvöllinn. Tvennt virðist einkum hafa farið úrskeiðis og kannski kostað hann sigurinn. Annars vegar voru liðsmenn hans óagaðir og ruddust fram í ótíma, hins vegar kom lið Dags Hringssonar of seint að bardaganum. Hefði Ólafur haft heppni með sér en ekki óheppni átti hann sæmilegar líkur á sigri. Tæpast hefði hann þó getað hrósað þeim sigri lengi eins og í pottinn var búið í Noregi.

Seinni spurningin snýst beinlínis um grundvallaratriði, nefnilega það hvort Stiklastaðabardagi hafi átt sér stað eða sé einber tilbúningur. Ýmsar samtímaheimildir og höfundar sem rituðu á síðari hluta elleftu aldar nefna þessa orrustu alls ekki á nafn. Samkvæmt þeim var Ólafur myrtur eða veginn úr launsátri að undirlagi einhvers sinna mörgu óvina og enginn frásagnarverður bardagi var háður að Stiklastöðum. Það er ekki fyrr en á þrettándu öld sem sagnaritarar fara að kannast almennilega við hann. Þá vita þeir allt í einu ótal smáatriði bæði um aðdragandann og orrustunnar gang. Merkilega margt í þeim frásögnum fellur í laðir hinna hefðbundnu sagna um helga menn og píslarvotta.

Það eru forréttindi að fara bláeygur ferðamaður um hlöðin á Stiklastöðum og þurfa ekki að taka afstöðu til svona erfiðra spurninga.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE