×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

image

Rassfar í steini, 58. Ólafi rænt

58. Ólafi rænt

Åre er með vinsælli útivistarstöðum í Svíþjóð, sumar sem vetur. Það er 380 metra yfir sjó, þar er ferskt loft, fallegir skógar, há fjöll. Í grenndinni er efsta kaffihús í Svíþjóð og í brekkunum voru tvívegis haldin heimsmeistaramót í skíðaíþróttum. Við komum þangað síðdegis. Þorpið teygir úr sér meðfram Indalsälven og göturnar voru fullar af göngufólki, klifurfólki, hjólafólki, hlaupafólki, brettafólki, svifdrekafólki og torfærufólki. Það heyrði til undantekninga að sjá venjulega klætt vinnandi fólk. Sem betur fer stungum við ekki í stúf í aðsniðnum hjólabuxum með hjálma og hjólaskó. Við fengum inni á nýlegu farfuglaheimili og þar var þaulvant fagfólk og Gísli bar ekki við að prútta. Við bjuggum okkur undir tveggja nátta dvöl: veðurspáin var vond og rigningarleg. Það gekk eftir; næsti dagur var blautur og flestum gestanna í bænum fannst eins og okkur að það gæfi ekki til hjólreiða, torfæruferða, flugs, svifs, ratleikja eða fjallgöngu. Þeir röltu milli verslana í bænum og skoðuðu búnað og föt sem þeir virtust þó eiga í ofgnótt fyrir. Þetta varð leiðigjarnt til lengdar en sem betur fór var gömul trékirkja í boði. Sagan segir að í kirkjugarðinum í Åre liggi töluvert margir pílagrímar sem aldrei náðu alla leiðina til Niðaróss. Þeir höfðu ekki fengið inni í gistihúsum, ekki verið klæddir í rétta útivistarfatnaðinn eða einfaldlega villst og orðið úti, en sælir eru þeir sem farast á pílagrímaleiðum, því þeir komast fyrr en aðrir til himnaríkis.

Þegar inn var komið í kirkjuna blasti við Ólafsstytta úr tré frá fjórtándu öld. Ólafur var að þessu sinni klæddur í bláan og grænan kyrtil með rautt belti, viðhafnarlaus og rauðskeggjaður. Það kom á daginn að þessi Ólafsstytta hafði átt misjafna daga þó allt hafi fallið í ljúfa löð að lokum. Fyrst skal nefnt það böl sem algengt er og loðir við Ólafsstyttur; að hafa glatað öxinni: Hvenær? Fyrir löngu. Hvernig? Hver veit? En verra var að þessi Ólafur hafði einnig glatað kórónunni. Ungur hermaður sem sneri örkumla heim úr síðasta stríði Karls tólfta var fenginn til að bæta úr kórónumissinum. Í staðinn fyrir kórónu tálgaði hann svokallaðan Karólínahatt, en það er þrístrendur einkennishattur sem hersveitin hans hafði borið. Þennan hatt setti hann á höfuðið á Ólafi konungi. Sjálfsagt var hann bitur út í hernaðinn og kannski kónga yfirleitt. Sóknarnefndin virðist hafa skilið hann vel. Flestir á þessum slóðum höfðu misst einhvern í þessu bölvaða stríði. Þess vegna er höfuðbúnaður Ólafs helga í Åre-kirkju ekki kóróna heldur svartur Karólínahattur frá því snemma á átjándu öld.

En eitt er að tapa lausamunum, öxi og kórónu, og annað að tapa sjálfum sér. Það var dag nokkurn í septembermánuði árið 1983 sem kom í ljós, að sjálf styttan af Ólafi helga var horfin úr kirkjunni og hafði hreinlega verið stolið ásamt fleiri kirkjugripum. Það setti ugg að mönnum því svona gamlar miðaldastyttur gengu á margar milljónir á gráa helgilistarmarkaðinum suður í Evrópu. En svo fannst miði í kirkjunni og á honum skilaboð frá ræningjanum. Þar sagðist hann eiginlega alls ekki vera ræningi hvað þá glæpamaður, heldur einfaldlega staurblankur og sig sárvantaði pening til að friða lánardrottna, nánar tiltekið þrettán þúsund sænskar krónur. Hann gaf í skyn að fyrir það fé væri hægt að kaupa Ólaf helga lausan. Uppi varð fótur og fit. Prófasturinn hringdi í miðil, sem sagði að sér virtist styttan enn ekki hafa yfirgefið byggðarlagið og ráðlagði að leitað yrði í öllum mögulegum skúrum og kofum. Það var mikið af þessháttar þarna í grenndinni og kalsamt verk að leita í vetrargaddinum en ekkert fannst. Einhverjir söfnuðu saman lausnargjaldinu og voru albúnir að eiga viðskipti við þjófinn en þá heyrðist ekkert frá honum meira. Í janúar hafði svo lögreglan hendur í hári manns sem játaði að hafa stolið kirkjugripum úr ýmsum kirkjum og þar á meðal trékalli með hatt úr Åre-kirkju. Trékall þennan og nokkra gamla kertastjaka sem hann tók í leiðinni hafði hann sett í plastpoka og grafið úti í skógi undir háu grenitré spölkorn frá Åre-tjörninni. Það reyndust ótrúlega mörg há grenitré standa nálægt Åre-tjörninni en þó fannst þýfið um síðir og Ólafur var á ný færður á sinn stað í kirkjunni.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE