×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale Up to 50% off
image

Rassfar í steini, 5. Kvöld og nótt

5. Kvöld og nótt

Það var laugardagskvöld og á farfuglaheimilinu var í uppsiglingu grillveisla fyrir alla gesti: nóg kjöt fyrir áttatíu krónur sænskar, kartöflusalat, vatn og léttöl en ekkert sterkara. Á þessum gististað mátti ekki hafa neins konar áfengi um hönd. Steikarsveinninn var glaðbeittur og afar uppörvandi enda hafði hann greinilegar áhyggjur af að koma ekki út öllu kjötinu sem hann hafði keypt til veislunnar. Á sveimi í kringum hann var langur maður, horaður, hörundsdökkur og nokkuð roskinn. Það var eins og húðin á hausnum á honum væri svolítið þrengri en þurfti utan um kúpuna og þess vegna var dálítið erfitt að henda reiður á svipnum og andlitinu. Maður gat varla gert upp við sig hvort þetta væri svartur maður, brúnn eða hvítur en víst var hann skuggalegur og varla mundi guð hafa á honum mikinn þokka. Það var líka eins og þessi maður sækti í skugga og því var torvelt að festa á honum sjónir; manni fannst hann vera á einum stað en þá var hann farinn þaðan en þó ókominn annað. Bandaríski herinn mun vera að þróa hermenn sem renna svo inn í umhverfi sitt að þeir sjást ekki og kannski var hér um þess háttar mann að ræða. Hann virtist farfuglaheimilinu viðkomandi en þó ekki. Svo barst sá kvittur milli gesta að þessi maður væri leynivínsali. Ef maður borgaði hundrað krónur en ekki áttatíu fyrir kjötið gat maður fengið sterkt öl með því svo lítið bar á. Það kvisaðist líka að náunginn héti Jack Berry og við nánari skoðun virtist hann alls ekki ólíkur Chuck Berry í sjón, einkum eftir að Chuck fór að reskjast. Kannski var hér kominn yngri bróðir hans sem gat hafa lent á glapstigum og allt eins hrakist til Svíþjóðar. Við keyptum sterkan bjór af Jack Berry. Þannig menn er betra að hafa með sér en móti.

Í byrjun nætur smárigndi og væta safnaðist í þakrennuna. Hún dugði ekki í samfellda bunu heldur rann saman í þunga, vatnsmikla dropa á brún niðurfallsins. Á endanum duttu þeir í óreglulegum takti og smullu á blikkhné niðri undir jörð. Þetta var ekki mikill hávaði en rumski maður á annað borð, fer maður að bíða og þá er oftast úti um svefn. Við næturgestir heimilisins vöknuðum, vöktum og biðum með vaxandi óþreyju og ergelsi eftir næsta dropa; írakski flóttamaðurinn, einstæða móðirin, draslaralega sænska parið og við pílagrímarnir. En eitt af mörgu sem Gísli hefur fengist við um dagana eru pípulagnir. Nú snaraðist hann út og henti grasi ofan í niðurfallsrörið. Meira þurfti ekki. Við þær aðstæður gat enginn dropi lengur unnið skemmdarverk á næturrónni í farfuglaheimilinu uppi á Norðurfjallinu. Það þarf oft ekki nema lítið til að lina böl margra.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE