×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Sign Up Free
image

Rassfar í steini, 47. Östersund

47. Östersund

Við hjóluðum síðasta spölinn inn í bæinn Östersund í sólskini og góðviðri á hjólastíg fjarri þjóðveginum. Östersund er höfuðborg Jamtalands, svolítið stærri en þorp en dálítið minni en bær.

Svíakonungur stofnaði þarna kaupstað árið 1786 en það er einmitt sama árið og Reykjavík fékk sín kaupstaðarréttindi. Sænsku yfirvöldin vildu þá sem fyrr sporna við viðskiptum bændanna í Jamtalandi yfir til Noregs og skattsvikum þeim tengdum. Þeim var ætlað að versla í bæjunum niðri við ströndina; Härnösand og seinna Sundsvall. Það vildu bændurnir aftur á móti ekki heldur laumuðust eftir sem áður í óleyfi yfir landamærin til Noregs eða þá versluðu við farandkaupmenn framhjá sænsku skattheimtunni. Stjórnvöld voru búin að reyna margt; sektir, tolla, landamæragæslu, refsingar, en brotaviljinn var sterkur og þá ekki síður tengslin milli Jamta og Þrænda. Markmiðið með því að stofna kaupstaðinn Östersund var að reyna að ná versluninni þangað. En Jamtar voru rótgrónir dreifbýlismenn og vildu ekki flytja til þessa nýja bæjar. Það breytti litlu þó aðfluttu fólki væri lofað skattfríðindum; framan af óx bærinn hægt. Svo varð allt annað uppi á teningnum þegar járnbrautin milli Sundsvall og Þrándheims var lögð gegnum bæinn seint á nítjándu öldinni. Um svipað leyti var líka fyrsta góðtemplarastúkan stofnuð í Östersund. Hún sló í gegn og hálfu ári seinna voru stúkurnar orðnar átta. Þá var fjórðungur bæjarbúa orðinn stúkumeðlimir og brátt sýndu útreikningar og samanburðarlistar að hvergi í víðri veröld var góðtemplarahreyfingin jafn sterk og einmitt í Östersund. Þegar kosið var um áfengisbann í Svíþjóð 1922 voru þrír fjórðu hlutar íbúanna í Östersund fylgjandi því. Það dugði ekki til, því aðrir Svíar voru ekki jafn ákafir bindindismenn.

Við félagarnir settumst að á farfuglaheimili niðri við strönd og höfðum aðgang að eldhúsi. Aðrir gestir voru fáir; nokkrir íþróttadrengir og spænskumælandi móðir en hún hafði komið til að heimsækja dóttur sína sem hafði fengið vinnu eða hæli í Östersund. Þær sátu löngum á hvíslandi og trúnaðarfullu tali inni í dimmri setustofunni. Utan við gluggann okkar lágu lestarteinar; austur til Sundsvall, vestur til Þrándheims, en lestirnar fóru sjaldan og ævinlega hægt og hljótt. Það var eins og þær læddust gegnum Östersund, héldu niðri í sér andanum og slepptu honum ekki fyrr en þær voru komnar svo langt í burtu að blístrið var rétt greinanlegt. Það sást ekki á skýjafari né athugun á himinskautum að nú myndi bregða til ótíðar en við fréttum það úr sjónvarpi að næsta dag var spáð stórrigningu og hvassviðri. Við Gísli þurftum ekkert endilega að sýna karlmennsku og ekki lá okkur á, svo við bjuggum okkur undir hvíldardag. Við höfðum að vísu aðeins hjólað í fjóra daga, alls 225 kílómetra og varla náð í þrjú hundruð metra hæð svo við áttum varla hvíld skilið. En fyrir utan hvað það er blautt þá er bæði óþægilegt og stórvarasamt að hjóla á vegum í stórrigningu. Það er ekki einasta að droparnir falli að ofan heldur ausa bílar yfir mann úr vatnspollum. Stundum sér maður ekki út úr augum fyrir vatnsaustri smástund og á meðan getur ýmislegt gerst. Svo slævist athyglin og einbeitingin. Maður á til að taka óhugsaða beygju framhjá polli og þannig beygja getur hæglega orðið síðasta beygjan. Ég hafði fengið hálsremmu og það var ágætt að fá tóm að ná henni úr mér. Gísli var frískur og ferskur eins og ungabarn en fagnaði tómstund, af því að hann var að finna upp og þróa spánýja og byltingarkennda gerð af hjólstandara. Morguninn eftir sannreyndum við að veðurspárnar höfðu engu logið. Það runnu fossandi lækir eftir öllum götum, regnskýin sem venjulegast grúfa yfir jörðinni voru núna beinlínis lögst ofan á hana eins og þung fiðursæng. Spænskumælandi mæðgurnar tóku daginn snemma og hvískruðu ákaflega en við höfðum hægt um okkur; sváfum og lásum. Upp úr hádeginu hafði dregið merkjanlega úr vatnsaustrinum og við ákváðum að hætta okkur út.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE