×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale Up to 50% off
image

Rassfar í steini, 4. Steinbærinn

4. Steinbærinn

Sundsvall er gróflega snotur bær og þar búa nálægt sextíu þúsund manns; ósabær og hafnarbær. Og hvað þýðir nafnið Sundsvall? Völlurinn við Sund. Og sundið var langur og mjór fjörður sem skarst inn í landið, en þornaði upp þegar aldirnar liðu út af landrisi og breyttist í á. Það var Selånger-áin.

Þegar við Gísli komum til Sundsvall þurftum við fyrst verka að finna farfuglaheimilið, losa okkur við farangurinn og skila síðan bílnum. Heimamenn kalla hæðarkollana hvorn sínu megin bæjarins fjöll, sem er fulldjúpt tekið í árina, en farfuglaheimilið var uppi á Norðurfjallinu.

Á bakaleiðinni frá bílaleigunni gengum við gegnum miðbæinn. Hann var kallaður „Steinbærinn“, af því að árið 1888 bannaði bæjarstjórnin að byggð væru timburhús í bænum. Eftir það máttu hús ekki vera úr öðru efni en steini. Samt átti bærinn alla upphefð sína, afkomu og auðlegð að þakka timbri og trjám. En þetta bann kom ekki til af slettirekuskap, sem sumar bæjarstjórnir eiga til, heldur út af brunanum mikla sumarið 1888. Þá hafði verið einmuna þurrkatíð og viðvarandi sterkjuhitar. Það þurfti ekki nema neista úr strompinum á gufubáti til að kveikja í fyrsta þakinu. Eldurinn stökk yfir í næsta þak og innan skamms stóð allur bærinn í ljósum logum. Eldstormurinn var þvílíkur að turninn spýttist upp af kirkjunni eins og lítil eldflaug og lenti mörg hundruð metra í burtu. Um kvöldið höfðu fjögur hundruð eignir brunnið. Af ellefu þúsund íbúum urðu níu þúsund heimilislausir á einum dagsparti og margir höfðu misst allt sitt. Þetta var raunar ekki í fyrsta sinn sem bærinn brann. Rússneski herinn kveikti í honum árið 1721og aftur brann hann árið 1803. Bæjarstjórnin taldi þá fullreynt.

Það var svo ótrúleg fyrirmunun að þennan sama dag, 25. júlí árið 1888 en hálftíma síðar, varð annar stórbruni í bænum Umeå norðar á Eystrasaltsströndinni. Þar brann ofan af fimm íbúum af hverjum sex. Óskar II. Svíakóngur fór í hluttekningarskyni með lestinni frá Stokkhólmi norður til Sundsvall daginn eftir brunann og gaf pening en hélt svo áfram með gufuskipi norður til Umeå sömu erinda. Í blaðinu Norrlänningenvar skrifað að húrrahróp hefðu samt verið dræm, jafnt við komu hans og brottför.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE