×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale Up to 50% off
image

Rassfar í steini, 13. Saga um fæðingu og nafn

13. Saga um fæðingu og nafn

Ólafur Geirstaðaálfur bjó vissulega á Geirstöðum en var ekki álfur þegar hér er komið sögu, enda hét móðurafi hans Alfarinn úr Álfheimum og er of fátt um þann mann vitað. Ólafur var jarðneskur höfðingi og konungur sem lifði lífi sínu og dó. Hann hafði dvalið alllengi dauður í haugi sínum að Geirstöðum þegar hann birtist í draumi áðurnefnds Hrana, þess sem var fóstbróðir Haraldar grenska. Í draumnum sagði Ólafur Hrana að hann skyldi rjúfa hauginn og ganga inn í hann og láta sig hafa bæði fnykinn og fýluna sem þar lægi í lofti. Hann mundi þarna hitta fyrir afturgöngu sitjandi á stól og væri það Ólafur sjálfur. Hrani skyldi þá höggva af afturgöngunni höfuðið en setja það síðan á hana aftur. Að þessu tilgangslitla verki loknu, því það mun ekki skipta afturgöngur miklu hvort þær hafa haus eða ekki, þá átti Hrani að taka gullhring af draugnum, hníf og sverð og loks belti. Að svo búnu skyldi hann halda rakleitt til Grenlands og hitta þar Ástu Guðröðardóttur. Draugurinn kvað þar verða dapra aðkomu því Ásta drottning verði liggjandi á gólfinu í harðri barnsnauð og geti með öngvu móti fætt dreng sem situr fastur í burðarliðnum. Draugurinn lagði fyrir Hrana að bjóðast til að koma fæðingunni í kring gegn því að fá að ráða nafni drengsins. Því verði vel tekið og þá skuli hann leggja áðurnefnt belti utan um þaninn kvið Ástu og jafnskjótt sem hann geri það muni barnið fæðast og vera vel á sig komið. Hann eigi þá að nefna drenginn Ólaf. Hrani gerði nú allt það í veruleikanum sem draugurinn lagði fyrir hann í draumnum og það gekk allt eftir, enda mega draugar eiga það að þeir eru ólygnir. Ólafur Haraldsson, sem með þessum hætti kom til sögunnar, fékk því bæði líf sitt og nafn frá draug. Þar á ofan fékk hann sent frá honum sverðið, sem fyrst var kallað Bæsingur en síðar Hneitir.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE