×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

New Year Sale Up to 50% off
image

Rassfar í steini, 11. Saga um draum

11. Saga um draum

Í upphafi Heimskringlu segir Snorri frá Hálfdani svarta sem var faðir Haraldar hárfagra og einn forfeðra Ólafs Haraldssonar. Hálfdan var tuttugasti og níundi liðurinn frá Óðni og smákóngur yfir nokkrum fylkjum Noregs. Hann var mikill og sterkur og svartur á hár en bjó við þá fötlun að dreyma aldrei, eða öllu heldur að muna aldrei drauma sína að morgni. Hann bað Þorleif spaka, sem var mikill sálfræðingur, um ráð við þessari vöntun. Þorleifur sagði honum að sofa í svínastíu, því þar mundu draumar ekki bregðast honum. Hálfdan fór að þessu ráði og dreymdi óðara draum. Honum þótti að á höfði sér væri sprottið mikið og fagurt hár, sem féll niður um hann í afar missíðum lokkum. Sums staðar var hárið varla lengra en skeggbroddar, annars staðar náðu lokkarnir niður undir hné. Einn lokkurinn var langmestur og miklu fegurri en hinir. Nú er sjaldnast nóg að tala einu sinni við sálfræðing enda sneri Hálfdan sér á nýjan leik til Þorleifs spaka og bað hann að ráða drauminn. Þorleifur sagði að hann mundi eignast marga afkomendur og mundu sumir þeirra ráða ríkjum en takast það misvel. Hann spáði að einn þeirra yrði þó miklu mestur og merkastur. Það réð hann af langa lokknum sem raunar táknaði Ólaf konung Haraldsson. Það er af Hálfdani svarta að segja, að hann féll niður um ís og drukknaði á leið heim úr veislu. Svo vænt þótti þegnum hans um kónginn sinn að skipta þurfti líkinu í fernt svo hvert hérað mætti jarðsetja hluta þess hjá sér.

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE