Tímasetningar
Tímasetningar eru afar mikilvægar og ekkert síður í lífinu en í pólitík. Ef þú ert réttur maður á réttum stað á réttum tíma getur þú fengið Nóbelsverðlaun eða trúlofast Claudiu Schiffer, meðan hárréttur maður getur hangið jafnvel á réttum stað tímunum saman án þess það hafi nokkuð upp á sig ef það eru ekki réttu tímarnir.
Þetta henti trillusjómann sem eitt sinn fékk koparketil í nótina. Ketillinn var með skrúfuðu loki og sjómaðurinn hafði ekki fyrr náð því úr en upp úr katlinum steig þéttur þokuhnoðri sem við nánari aðgæslu reyndist vera andi. Hann sagðist vera fyrrverandi drísildjöfull og fyrir langa löngu hefði hinn voldugi kóngur Salómon lokað sig niðri í þessum koparkatli fyrir að vera með leiðindi og svo hent honum í sjóinn. Andinn hafði því verið heimilisfastur í katlinum í nærri þrjú þúsund ár og lánið hans var að andar þurfa hvorki að eta né drekka, því annars hefði hann verið löngu dauður. Andar í lokuðum ílátum hafa fyrir sið að uppfylla eina og upp í þrjár óskir þeirra sem hleypa þeim út, og þessi andi sagði trillukarlinum það í óspurðum fréttum að fyrstu þúsund árin hefði hann lofað því að gera hvern þann ríkan eins og seðlabanka sem fyndi ketilinn og opnaði fyrir sér. Þúsund ár liðu og andinn lá jafn ófundinn á hafsbotni. Hann bætti þá í og næstu þúsund árin lofaði hann að veita þeim sem frelsaði sig alla visku heimsins. Maður sér á þessu hvað hann hafði búið afskekkt og lítið fylgst með framförunum í heiminum að hann skyldi halda að viska þætti eftirsóknarverðari en peningar. Allt kom fyrir ekki og næstu þúsund ár liðu án þess nokkur skrúfaði lokið af katlinum. Tvö þúsund ár eru langur tími, ef maður er að bíða í miklum þrengslum og eftir að þau voru liðin án þess að nokkur hleypti andanum út, varð hann saltvondur og hét því að hér eftir hann skyldi steindrepa hvern þann sem fyndi sig. Við þetta stóð hann. Þrem dögum síðar fannst trillan mannlaus á reki og svo var sjómaðurinn gæfulaus að tryggingafélagið neitaði jafnvel að borga líftrygginguna. Það er vissulega ekki sanngjarnt, en það er alls ekki sama á hvaða árþúsundi maður finnur anda í koparkatli.