×

We use cookies to help make LingQ better. By visiting the site, you agree to our cookie policy.

Black Friday Up to 50% off
image

Föðurlaus sonur níu mæðra, Hreðjatök kynlífsins

Hreðjatök kynlífsins

Aristóteles var ljóngáfaður maður og trauðla er nokkur jafnoki hans hér á Íslandi. Aristóteles velti getnuðum fyrir sér eins og nánast öllu öðru, lifandi og dauðu, og komst að þeirri niðurstöðu að það væri karlinn og sæðið sem þar skipti öllu máli; í sæðinu synti pínulítið fóstur tilbúið með öllu og þyrfti bara að stækka. Konan væri næstum algjört aukaatriði og legði ekkert af mörkum nema tíðablóðið, sem Aristóteles taldi að fóstrið nærðist á þangað til það fæddist og færi að drekka mjólk. Skólaspekingurinn Tómas af Akvínó var Aristótelesi í stórum dráttum sammála í þessu efni, en bætti því við að þó móðirin væri vissulega að einhverju leyti nauðsynleg geymsla fyrir barnið á meðgöngunni, þá ætti það samt ævinlega að elska föður sinn meira en hana, af því hann hefði haft alla fyrirhöfnina við að búa það til en mamman bara slappað af á meðan. Það verður að segja Tómasi til hróss að hann komst að þessari niðurstöðu með íhugun einni saman, því verandi kaþólskur kennimaður mátti hann sjálfur ekki stunda neinar tilraunir sjálfur á sviði getnaða. Tómas og aðrir kirkjunnar menn litu raunar svo á að konan væri stórvarasöm af því holdsfýsn hennar væri miklu meiri en karlsins og sennilega alveg óseðjandi. Þeir voru enn fremur handvissir um það að frá náttúrunnar hendi hefði hún afar lítið taumhald á löngunum sínum og væri opin fyrir öllum mögulegum illa meintum uppástungum fjandans. Náttúrufræðilega séð töldu þeir konuna vera einskonar millistig á milli karlmanns og skynlausrar skepnu. Tómas veigraði sér við því í afar löngum ritsmíðum sínum að kalla konur algjört klúður, þótt hann langaði til að segja það, en með því móti hefði hann sakað almáttugan Guð um mistök, sem auðvitað gengur ekki.

Það hefði verið mikið vatn á millu Tómasar og annarra kaþólskra kynfræðinga í prestastétt að þekkja til Katrínar miklu, keisarynju í Rússlandi á 18. öld, sem fyrir sína parta sagðist þurfa sex umspenningar - með öðrum orðum sex samfarir - á dag, til þess eins að geta sofið sæmilega á nóttinni, en Katrín var annálaður dugnaðarforkur, verkamikil og hraðvirk að hverju sem hún gekk.

En framþróun mannkynsins eru markviss og óaflátanleg. Það hefði glatt hið lærða en einmana hjarta Tómasar af Avínó, ef hann hefði mátt fregna af rannsókn sem verslunarkeðjan Quick Save í Bretlandi kostaði og greint var frá árið 2004. Rannsóknin leiddi það í ljós, með nokkurn veginn óyggjandi hætti og innan viðunandi öryggismarka, að umtalsverður hlutur kvenna kvaðst hafa miklu meiri ánægju og betri fullnægju út úr því að gera góð kaup á útsölu heldur en samförum, ekki síst ef kaupin voru gerð í verslunarkeðjunni Quick Save. Konurnar bentu á að hægt sé að gleðjast vikunum saman yfir góðri flík sem fæst á undirverði, meðan ánægjan af samförum standi þegar best lætur í 13-51 sekúndu en sé oft alls engin. Kannski hillir því undir þá tíð, að kynhvötin lini þau heljar-, að ég segi ekki hreðja-tök, sem hún hefur haft á mannkyni frá því löngu fyrir daga Tómasar af Akvínó og fólk verði senn frjálsara til að snúa sér að öðrum áhugamálum.

Utrio, K.: Evas döttrar. Prisma. Stokkhólmi. 1984

Fréttablaðið. 18. des. 2004

Learn languages from TV shows, movies, news, articles and more! Try LingQ for FREE