Hér segir frá álft sem elskar hjólabát
Lágstemmd frétt sunnan úr Þýskalandi, sem birtist í Fréttablaðinu árið 2006, sýnir að nútímatækni gerir ekki einasta ástir mannanna villugjarnar heldur ruglar hún einnig skynlitlar skepnum í ríminu. Fréttin var þessi: „Svartur svanur í Þýskalandi hefur fellt hug til hjólabáts úr plasti, sem er í laginu eins og svanur. Elskendurnir hafa nú verið færðir í dýragarð og munu eyða vetrinum þar saman. Peter Overschmidt, eigandi bátsins, ákvað að hýsa bátinn ekki innandyra í vetur eins og hann gerir venjulega og fær svanurinn því að vera í návistum við hinn fótknúna elskhuga næstu mánuðina.“
Þessi frétt er dálítið hroðvirknislega orðuð; það er óþörf endurtekning á hinu sama að taka það fram að eitthvað sé hýst innandyra, og sennilega er það líka fyrir gáleysi fréttamannsins þegar gefið er í skyn að fótknúni plastbáturinn hafi endurgoldið ást svansins og þeir beinlínis verið elskendur. Það eru alls engar heimildir fyrir því neins staðar frá, að plastbátar elski nokkurn skapaðan hlut; þeir elskast ekki einu sinni sín í milli. Í fréttinni var hins vegar vitnað til ónafngreinds líffræðings í þýsku borginni Münster varðandi tilfinningar svansins. Hann sagði svarta svaninn hafa sýnt öll merki þess að vera í tilhugalífi. Hann hefði hringsólað kringum bátinn, starað endalaust á hann og gefið frá sér ótvíræð ástarhljóð.
Yfirleitt eru íslenskir fjölmiðlar ónýtir við að fylgja fréttum eftir, en Fréttablaðið á hrós skilið fyrir að skýra frá því í mars árið 2008, að þessi sama álft, sem nú var nefnd Svarta-Petra, hafi tekið saman við hvítan holdlegan svan og sé afar hamingjusöm. En hafi maður eða álft á annað borð lagt lag sitt við hjólabát úr plasti, þá verður það ekki aftur tekið; náttúran verður ekki lamin með lurk og leitar heim um síðir, segir máltækið. Það kom á daginn að hamingja Svörtu-Petru í mars reyndist bæði grunn og yfirborðskennd, því það var var ekki langt liðið á aprílmánuð áður en Fréttablaðið upplýsti að nú væri Svarta Petra aftur komin í tygi við plastbátinn.
Fréttablaðið 2006, 2008