Heimsósómi
Mannlífið hefur lengi búið um sig á jörðinni. Herra James Usher, erkibiskup í Armagh á Írlandi reiknaði út frá Gamla Testamentinu að sköpunin hefði átt sér stað 4004 árum fyrir Krists burð. Útreikningar hans hafa í sjálfu sér ekki verið afsannaðir. John Lightfoot, varakanslari við háskólann í Cambridge sýndi nokkru síðar fram á, að sköpunin hefði hafist þann 23. október, og raunar klukkan tíu fyrir hádegi. Það er óneitanlega smásmygli að tiltaka stundina áður en sjálf sólin varð til, hvað þá klukkan, en Jón þessi Léttfeti var ákaflega mikill nákvæmnismaður og það er ekki honum að kenna að nafnið hans skuli síðan hafa verið fest við rauðskinna í indíánasögum og hross í Skagafirði. Í þessum skrifuðum orðum hefur mannlífið samkvæmt þessu þróast í 6011 ár, 6 mánuði, 25 daga og 22 klukkutíma. Á þessum langa tíma hefur vissulega mörgu fleygt fram, en annað er merkilega ófullkomið. Síra Sigurður Jónsson var kannski óþarflega neikvæður, hugsanlega timbraður eða í vondu dagsformi af öðrum sökum, þegar hann setti saman eftirfarandi sálmavers árið 1834:
Midt í saurnum fyrst myndast mann,
í myrkri tekur sitt fóður,
leiðist svo ilt með angri hann,
af lífi sinnar móður,
rotið fæði er efnið hans,
en bóla vatns hérvistin manns,
endalykt orma sjóður
Þó maður sé ekki sammála síra Sigurði, er ekki hægt að mótmæla því að tímarnir eru orðnir ennþá órólegri eftir hans dag, ýmsu fer aftur en ekki fram og mörg ískyggileg teikn hningnunar eru á lofti. Svo aðeins örfá dæmi séu nefnd þá er steinhætt að láta fólk laxera misserislega, Ragnheiður Káradóttir hefur gert kjól úr brauðsneiðum, í Noregi réðust tveir elgir inn í blómagarð hjóna nokkurra og brutu þar af ásettu ráði fallega styttu af elg, hvorki fæst lengur í búðum Waldemars Petersen´s ekta Kína-lífs-elexír né Kardínáladuft , hafmeyjar eru á undanhaldi í höfunum og varla verður gengið að þeim vísum lengur annars staðar en í Sundskála Svarfdæla, íslensk börn vilja ekki borða fisk og halda að roðið sé húðsjúkdómur, a.m.k. í útlöndum skipta karlmenn því sjaldnar um nærbuxur sem þeir eru langskólagengnari (íslenskar rannsóknir vantar), árið 2005 töldu 36% svarenda í könnun á Íslandi sólina snúast um jörðu og það sama ár tók kona nokkur í Bretlandi bílpróf eftir að hafa stundað ökunám frá árinu 1972 og fallið 204 sinnum. Er að furða þótt Þursaflokkurinn syngi „Nútíminn er trunta með tóman grautarhaus?“
Þrátt fyrir þetta hafa málsmetandi menn mismunandi skoðanir á lífinu. Bob Dylan sagði að lífið væri eiginlega ekki neitt neitt: „Sá sem er ekki á fullu við að fæðast er önnum kafinn við að deyja“. John Lennon hélt að það fari mestan part fram hjá okkur: „Life is what happens to you, while you are busy making other plans“. Kristján frá Djúpalæk taldi rétt að setja á það aldursmörk:
Lífið er kvikmynd
leikin af stjörnum.
Myndin er ekki
ætluð börnum.
Fimmtíu Hugvekju Sálmar queðnir af Síra Sigurði sál. Jónssyni. Viðeyjar Klaustri. 1834 S. 56
Kristján frá Djúpalæk: Þrílækir. Ljóð. Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyi. 1972 S.39